Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1925, Blaðsíða 99
TIL MINNIS.
SAMVINNUVERSLUN BÆNDA.
C. L. Christensen, búnaðarfulltrúi Bandaríkjanna,
dvaldi um nokkra mánuði síöastliðið sumar í Noröurálfunni
til þess aö kynna sér búnaöarástandiö þar. Hann varö þess
vísari aö alheimshreyfing á sér staö meö þá samvinnuverzl-
un bænda, sem þegar hefir tekiö traustum tökunr á hugum
bænda í Bandaríkjunum og Canada. Hr. Christensen heim.
sótti 11 lönd í Evrópu. Á meöan hann dvaldi í Danmörku
mætti hann búnaöarfjárhagsfræðingum víösvegar utan úr
heimi, sem höföu veriö sendir þangaö til aö kynnast sam.
vinnuverzlun danskra bænda. Hr. Christensen sagöi nýlega:
“Hiö ágæta fjárhagslega fyrirkomulag, sem hinn nýi danski
búnaöur hvilir á, — sem er bezta búnaöarfyrirkomulag
heimsins, — hefir um 40 ára bil verið bygöur á samvinnu.
hugmyndum, sem hinn danski bóndi hefir notfært sér. —
Framleiöendur búnaðarafurðanna þar hafa leitt af sér nýja
velmegun um alt konungsríkið. Alt þetta á rót sína að
rekja til samvinnufyrirtækjanna í framleiðslunni, gæöum af-
urðanna og útflutningsins.11
VERTU VINGJARNLEGUR.
Þaö er sagt aö kurteisi í orðum og athöfnum beri vott
um menningu. Viðmót er sönn list, og það er hægt að þroska
það eins og aðrar listir. En því má aldrei gleyma að sönn
kurteisi verður að koma frá insta eðli mannsins eöa per.
sónu. Rót siðferðisins er i hjarta mannsins. Kurteisi get.
ur verið siðferðileg dygö, en hún getur aðeins verið sönn
og einlæg, er hún kemur frá siðfágun hugans. Kurteisleg
framkoma hefir vingjarnleg og göfgandi áhrif á alla; leynd.
ardómur siðlistarinnar er í því fólginn að gera alla eins
hamingjusama og okkur er frekast unt.
“Lifiö er sjóferð, en við vitum ekki hvert ferðinni er