Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1925, Blaðsíða 100
88
heitiÖ. Viö ráögerum og búum okkur til áætlanir, leggjum
niður fyrir okkur og undirbúum vandlega. En svo einhvern
góöan veðurdag grípa forlögin fram í fyrir okkur og kasta
öllum okkar draumum ofan í freyðandi hafið.”
Sextán hertogar af Hamilton eru aö flytja eöa veröa
fluttir frá þeim stað, sem gert var ráð fyrir aö yrði þeirra
síöasti hvílustaður meöan heimur stæði. Það er verið að
flytja það sem eftir er af þeirra jarönesku leifum burt úr
hinni fögru grafhvelfingu, sem er ekki all-langt frá Hamil-
ton-höllinni á Skotlandi, og bygð var af fyrsta hertoga ætt-
arinnar af Hamilton, meö þeirri yfirlýstu ákvöröun, “aö allir
leiðtogar hinnar miklu Hamilton.ættar, skyldu liggja þar hlið
viö hliö — þar til á dómsdegi, að þeir rísa upp og fara
fylktu liöi til sinna himnesku veldisstóla”. Grafhvelfinguna
verður nú að rífa til grunna, vegna kolanámu, sem þar
gengur undir og hefir gert undirstöðu hennar ótrygga, og
líka af hættu fyrir flóðum og fleira. Vegna þessa flutnings,
og hins, að grafreiturinn fyrir þessa höfðingja er valinn á
svæði, sem notaö hefir veriö fyrir knattspyrnuvöll, þá er
mesta ólund í gömlum skozkum ættum þarna í nágrenninu
og víðar, yfir þeirri svívirðing, sem þessari fornmerku ætt
sé nú sýnd meö þessu háttalagi. Því er og haldiö fram,
að þessi nýi grafreitur sé votlendur, og að leifar hertoganna
skolist á burt, og geri þeim þar af leiöandi erfitt fyrir aö
skipa sér í fylking til framgöngu á dómsdegi.
A sunnnn stööum í Kína kvað það vera siöur að láta
leirker upp á þakiö á húsinu, til þess að gefa til kynna að
ógift stúlka eigi þar heima. Ef mærin er ekki gjafvaxta,
er kerið látið vera á hvolfi, sé hún gjafvaxta, liggur það á
hliðinni og snýr opið fram að götunni. Þegar hún er gift,
er kerið tekið burt.