Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1925, Page 59
47
Guörán Salomon er fædd áriS 1854. Foreldrar
hennar voru Andrés Einarsson frá Kirkjuhvammi
og Sólveig Jónsdóttir Benediktssonar söSlasmiSs frá
Ytriey. Þau hjón bjuggu lengi í Tungukoti og HliS-
ardal á Vatnsnesi. GuSrún kom til Ameríku 1887
meS fyrra manni sínum Birni Stefánssyni Stefánsson-
ar og Asdísar Grímsdóttur, ættaSrar úr EyjafirSi.
Stefán og Asdís bjuggu lengi aS Þórukoti í VíSídal.
Þau hjón Björn og GuSrún settust aS í Winnipeg.
Þar misti GuSrún mann sinn eftir þrjú ár, frá tveim-
ur ungum börnum. Veturnir þar austurfrá eru erfiS-
ir fátæklingum, endu mun GuSrún þá hafa fengiS aS
kenna á því. Eftir fjógra ára veru þar brauzt hún í
aS komast vestur að hafi til Seattle. Þar giftist hún
aftur Sigfúsi Salomon, syni Jónasar Kortssonar, sem
lengi bjó í MountainbygSinni í N. D. AriS 1897 fluttu
þau hjónin Guðrún og Sigfús til Point Roberts, náSu
haldi á 40 ekrum af landi og bjuggu þar síSan. MeS
seinna manni sínum eignaSist GuSrún eitt barn, en
þaS dó ungt. Stjúpbörnum sínum reyndist Sigfús
góSur faSir og konu sinni vel eftir föngum. En heilsa
hans bilaSi skömmu eftir aS þau komu á tangann og
dó hann í apríl 1919. Börn GuSrúnar frá fyrra
hjónabandi eru: GuSrún Júlía, 34 ára, gift dr. Coffin
í Rossland, B. C. Lærði hún hjúkrunarfræSi og er nú
læknisins önnur hönd í starfi hans; og sonur, 37 ára,
giftur Sigurlaugu Líndal frá Blaine. Börn GuSrúnar
tóku upp ættarnafn seinna manns hennar og gengur
Jón því undir Salomons nafninu. GuSrún er nú til
heimilis hjá Jóni syni sínum og Sigurlaugu tengda-
dóttur sinni.
John Björnsson Salomon, sonur GuSrúnar Salo-
mon, sem hér á undan er sagt frá, er fæddur 1886,
og var því á fyrsta árinu, þegar hann kom meS for-