Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1925, Síða 66
54
viS þreskingu og þessháttar. VarS þaS undirstaSan
undir velmegun, sem hann síSar komst í fyrir þraut-
seigju og stakan dugnaS, ásamt guSs blessan og örlæti
náttúrunnar þar vesturfrá. Samt breyttu þau til og
fluttust vestur tiJ Point Roberts 1910, og keyptu 16
ekrur af landi í suSvesturhluta bygSarinnar, erliggur
aS sjó, bygóu sér þar laglegt hús og hafa búiS þar
síSan. Þau hjón hafa eignast 6 börn, en mist eitt af
þeim. Hin öll eru komin upp, og eru þau sem fylgir:
RagnheiSur 38 ára, gift SigurSi H. Goodman, til
heimilis í Bellingham; Agústa, 33, gift J. P. Gurney,
enskum manni, til lieimilis í Anacortes, Wash.; Sig-
ríSur, 30, hjú&runarkona, til heimilis í Seattle; Hall-
grímur, 27, í San Pedro. Cal.; Una, gift ensku'm
manni í Vancouver. — Bertel er bezti drengur,
örlyndur og stór, en raungóóur og vinur vina sinna.
Sigfás Hjálmarsson frá Höfðaströnd í Grunna-
víkurhreppi, er fæddur 1851. MóSir hans hét Astríð-
ur Bjarnadóttir, ættuS aS vestan. Sigfús kom til
Point Roberts 1898, bygSi þar snoturt heimili oghefir
búiS þar síSan. Heima á íslandi fór hann víSa.
Vann mest aS fiskiútveg á þilskipum. SíSan hann
kom vestur um haf hefir hann víSa fariS. Var um
eitt skeiS í Manitoba, Kom til Seattle rétt eftir brun-
ann mikla og var þau árin ýmist þar eða í öSrum
stórborgum á ströndinni. í æsku JærSi Sigíús járn,
smíSi. Hann er fróSur um marga hluti eins og þeir
menn oftast verSa er víSa fara, sé þá eftirtekt og
greind fyrir hendi til aS taka eftir og minni til aS
geyma, en þaS hefir hann hvorutvegga og er því
gaman aS eiga tal viS hann, Enda færist hann þá
í aukana og lifir þá upp aftur hin ýmsu æfintýri sem
hann hefir rataS í um dagana, Fremur er hann ein-
kennilegur maSur, óáleitinn viS aSra, en viSræSu
þýSur.