Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Side 23
ALMANAK
23
vík, að viðstöddum ríkisstjóra, ríkisstjórn, alþingismönn-
um fulltrúum erlendra ríkja, öðrum gestum og miklum
mannfjölda.
Víkur nú sögunni til Þingvalla, en þar fór fram að
Lögbergi laust eftir hádegið meginþáttur hátíðarinnar,
lýðveldisstofnunin sjálf.
Kl. 1.30 setti forsætisráðherra dr. Björn Þórðarson
hátíðina, er byrjaði með látlausri en fagurri guðsþjónustu.
Biskup Islands dr. Sigurgeir Sigurðsson flutti hjartnæma
ræðu og bæn, en f jölmennur kór söng sálmana “Þín misk-
unn, ó, Guð” og “Faðir andanna”, og tóku margir undir
í mannfjöldanum.
Þvínæst hófst fundur í sameinuðu Alþingi, er forseti
þess stjórnaði, en á dagskrá voru gildistaka stjórnarskrár
lýðveldisins Islands og forsetakjör.
Samkvæmt undangenginni samþykkt Alþingis á fundi
þess í Reykjavík daginn áður, lýsti forseti sameinaðs
þings því síðan yfir, að stjórnarskrá lýðveldisins væri
nú gengin í gildi.
Mikill fáni—lýðveldisfáninn—var dreginn að hún að
Lögbergi. Kirkjuklukkum um landið allt var hringt í tvær
mínútur og að því loknu var einnar mínútu þögn og um-
ferðastöðvun um allt landið. Var þagnarstund þessi hátíð-
leg mjög, en er henni lauk var sunginn þjóðsöngurinn.
Mun öllum viðstöddum verða sú mikla stund ógleym-
anleg, þá er því var lýst, að lýðveldi væri að nýju stofnað
á Islandi. 1 klukknahljómnum, er að eyrum barst, var
sem heyra mætti fótatak þeirrar nýju aldar, sem nú var
að hefjast í sögu þjóðarinnar. Draumurinn hjartfólgni
um endurborið frelsi Islands hafði rætst að fullu en
þegar “hugsjónir rætast fer þrumurödd um lönd”. Þá
rödd hafa vafalaust margir fundið bergmála í sál sinni
þessa ógleymanlegu örlagastund að Lögbergi.
Þegar forseti sameinaðs þings hafði flutt skörulegt
ávarp, gengu þingmenn til kosningar fyrsta forseta Is-