Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Page 32
32
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Jón ríki var hinn mesti merkismaður, einkennilegur
nokkuð að sögn kunnugra og kjarnakarl.
Sama ár og Jón ríki fór Friðfinnur Jónsson frá Þor-
valdsstöðum vestur með konu sína, Halldóm Pálsdóttur
(d. 1901) og tvo svni: Jón tónskáld Friðfinnsson og Pál.
Friðfinnur nam fyrst land í Nýja Islandi, en þeir frændur
eru allir komnir til Argyle fyrir 1885. Páll varð bóndi í
Argyle, en Jón fór til Winnipeg. 11) Ingibjörgu Hóseas-
dóttur minnir að dætur Friðfinns, Ragnheiður og Guðnv
(d. 1926) hafi farið vestur með föður sínum og bræðrum,
aðrir segja, að Guðný hafi komið vestur 1879 12) og
Ragnheiður ekki fyrr en 1887, og hafi þá gifst í Argyle
manni að nafni McLean. 13) Mun það vera réttara.
Þetta fólk kvað allt hafa dáið í Argyle, nema Jón tón-
skáld, hann dó í Winnipeg 16. des. 1936.
Sama árið og þeir Jón ríki og Friðfinnur á Þorvalds-
stöðum fór líka vestur Þórður Þorsteinsson, bróðursonur
Friðfinns, frá Tóarseli og Elísabet Daníelsdóttir frá Kol-
múla, er síðar varð kona Þórðar. Daníel faðir Elísabetar,
var Sigurðsson (Eiríkssonar) frá Fagradal, bróðir Árna
Sigurðssonar, er hér verður síðar getið, og Rannveigar,
síðari konu Þorsteins Jónssonar í Jórvík, bróðir Friðfinns.
En dóttir Þorsteins og Rannveigar var Elísabet, kona
Friðríks Wathne. Önnur dóttir Þorsteins var Mensaldrína
kona Stefáns Jóhannessonar, pósts. 14) Þórðar Þorsteins-
sonar og Árna Sigurðssonar er getið sem bestu glímu-
manna á skipinu, er flutti þá vestur um haf 1876. 15)
Þau Þórður og Elísabet fóru líka til Argyle og dóu þar.
Þetta fólk mun allt hafa farið með skipinu Verona frá
Seyðisfirði 12. júlí 1876.
11) ThJ. Brot, 75. 12) ÓSTh. 1939, 52.
13) ÓSTh. 1939, 42. 14) Óðinn 1915, X, 97.
15) ThJ. Brot, 16.