Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Page 73
ALMANAK
73
hér, sem byggðu þetta hérað fyrst í kringum vatnið
Foam Lake, voru margir. En hjálpfýsi og orðheldni tel
eg þó hina fegurstu, og þessir kostir voru fluttir með
þeim heiman af Islandi og komu úr íslenzkum jarðvegi.
Ö Ö ©
Árið 1907 kynntist eg fyrst Jóni Janussyni. 1 fyrstu
kom hann fyrir sem þurr á manninn og óþjáll í viðtali,
seinn til fastrar vináttu, en trúr og vinþýður, er í raunir
rak fyrir vinum hans. Jón gat aldrei þolað skjall eða gort
yfir kostum Islendinga, en væri hallað á hluta lands og
þjóðar, Islendingum viðkomandi, fannst hvergi betri
málsvari en Jón Janusson. Hann var einn af sjálfmennt-
uðu íslendingunum á fyrri árum þessa lands, Canada.
Hann hafði miklar og haldgóðar gáfur. Hagorður var
hann, en lét fátt í ljós af ljóðum sínum. Hann var söng-
hneigður svo mjög, að hann samdi sjálfur sönglög þó
nokkur, sem öll voru smekkleg og þýð í söng. Sjálfur hafði
hann þó lítinn lærdóm í þeim sökum, nema það sem hann
æfði í hornleikaflokki í þessu landi. Hann samdi líka sög-
ur, sem hann sýndi aðeins vinum sínum. Hagur var hann
til smíða, sérstaklega á tré. Dráttlist sá eg eftir hann,
sem hann sýndi fáum öðrum. Um skeið var hann sveitar-
skrifari. I lúterska söfnuðinum starfaði hann í mörg ár og
var samvinnuþýður og æfinlega ráðagóður. Heimili
byggði hann upp, svo sómi er að, enda vom það hans orð,
að Islendingar ættu æfinlega að eiga fallegri heimili en
aðrir þjóðflokkar og sýna í verkinu að þeir væru allt það,
sem þeim væri hrósað fyrir í íslenzku blöðunum. Jón
Janusson var einlægur föðurlandsvinur og vildi sýna það
meira í verki en orðum. Þennan ágæta mann missti
byggðin fyrir nokkrum árum, og má hún lengi minnast
hans sem eins hins bezta frumbyggjara þessarar byggðar.
Hér vildi eg líka minnast konu Jóns Janussonar, sem lifir
mann sinn og býr nú í bænum Foam Lake. Salome Bjarn-