Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Blaðsíða 101
ALMANAK 101
Man. Hann var 77 ára að aldri og hafði átt heima í Winnipeg
síðustu 40 árin.
18. Guðjón Jónsson (Fillipp), í Towner, N. Dak. Fæddur að Enni
á Höfðaströnd 17. ágúst 1880. Foreldrar: Jón Filippusson á
Saurbæ, Einarssonar frá Illugastöðum í Fljótum í Skagafirði
og Ólöf Ásgrímsdóttir Ásmundssonar frá Sveinsdal. Fluttist
vestur um haf með foreldrum sínum árið 1883, fyrst til N.
Dakota en síðar til íslenzku byggðarinnar í grennd við Upham
þar í ríkinu.
20. Sæunn Jackson, ekkja eftir Guðbjart Jackson, bróðurson séra
Matthíasar Jochumssonar, að heimili sínu í Winnipeg. Hún vai
86 ára að aldri og hafði dvalið 57 ár vestan hafs.
24. Solveig Jónsdóttir Pálmason, ekkja Sigurðar Pálmasonar (d.
1934), á sjúkrahúsi í Niagara Falls, Ont. Fædd 15. júní 1862
í Svefneyjum á Breiðafirði. Fluttist til Canada með manni sín-
um 1892 og settust þau að í Keewatin, Ont.
27. Friðrik (Fred) Reinholt, á sjúkrahúsi í Grand Forks, N. Dak.
Fæddur á íslandi 7. marz 1865, en kom til Bandaríkjanna með
foreldrum sínum, Friðrik og Solveigu Reinholt, árið 1879.
Landnámsmaður í vesturhluta Walsh County í N. Dak. og
átti þar heima til æfiloka.
27. Hóseas Josephson, að heimili bróðursonar síns í Argyle-byggð-
inni í Manitoba. Fæddur 31. okt. 1863 að Vestaralandi í Axar-
firði í N. Þingeyjarsýslu. Foreldrar: Jósep Björnsson og Mál-
fríður Hallgrímsdóttir. Kom með foreldrum sínum til Canada
1878 og til Argyle þrem árum síðar.
30. Ágústína María, kona Edwards Schevings, í grennd við Hen-
sel, N. Dak., á sjúkrahúsi í Grafton, N. Dak. Fædd í Mountain-
byggð þar í ríkinu 28. marz 1902, dóttir Jóhannesar og Önnu
Anderson, sem þar hafa verið búsett lengi.
30. Gunnar Thorsteinsson, á sjúkrahúsi í Foam Lake, Sask. Fædd-
ur á Islandi 12. júlí 1884 og flúttist tveim árum síðar með
foreldrum sínum frá Seyðisfirði vestur um haf til Winnipeg.
L'andnámsmaður í grennd við Foam Lake 1908.
FEBRtJAR 1944
3. Júlíus Hreiðar Skaftfeld, af slysförum í Winnipeg. Fæddur
þar í borg 30. marz 1906, sonur þeirra Hreiðars Skaftfelds
byggingamanns og konu hans Olgu Vilhjálmsdóttur Olgeirson,
látin fyrir mörgum árum.
4. Anna Árnadóttir Anderson, ekkja Árna Anderson klæðskera,
að heimili sínu í Winnipeg. Fædd 20. marz 1861 og ættuð frá
Gilsárvalla-hjáleigu í Borgarfirði í Norður-Múlasýslu. For-
eldrar: Árni Jónsson og Guðný Pálsdóttir. Kom til Canada
árið 1884 og átti jafnan heima í Winnipeg.
4. Helen Margrét Jóhannson, kona Davíðs Hólm Jóhannson, að
heimili sínu í Burnaby, B. C. Fædd að Garðar, N. Dak., 20.
okt. 1897. Foreldrar: Helgi Johnson og Guðrún Einarsdóttir.