Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Side 109
ALMANAK 109
Skaftafellssýslu 21. júlí 1853. Kom með manni sínum til Cana-
da 1888.
23. Björn Methúsalemsson, frá Ashern, Man., á sjúkrahúsi í Winni-
peg. Fæddur að Bustarfelli í Vopnafirði 22. mai 1887. For-
eldrar: Methúsalem Einarsson og Elín ólafsdóttir. Kom vestur
um haf 1906.
23. Jóhann Júlíus Jónasson smiður, á Johnson Memorial sjúkra-
húsinu að Gimli, Man. Fæddur 13. sept. 1863 að Miðhópi í
Víðidal í Húnavatnssýslu. Foreldrar: Jónas Jónsson og Ólóf
Júlíana Gunnarsdóttir. Fluttist til Vesturheims 1893 og átti
lengstum heima í Winnipeg.
24. Jón Jónsson, að heimili sínu í Winnipegosis, Man. Fæddur 23.
apríl 1874 á Meðalfelli í Nesjum í Hornafirði í Austur-Skafta-
fellsýslu. Foreldrar: Jón Jónsson og Þórdís Halldórsdóttir.
Kom með foreldrum sínum til Canada 1893.
27. Sigurður Ásvald Teitson, að heimili sínu í grennd við Blaine,
Wash. Fæddur 29. nóv. 1899 i grennd við Joliette, N. Dak.
Foreldrar: Ágúst Teitsson og Sigurbjörg Helgadóttir.
29. Sigurlaug Einarsson, á elliheimilinu “Betel” að Gimli, Man.
Fædd að Blöndubakka í Refasveit í Húnavatnssýslu 9. júní
1885. Foreldrar: Björn Einarsson og Hólmfriður Guðmunds-
dóttir. Kom til Canada um aldamótin.
30. Málfríður Einarsson, ekkja Guðmundar Einarssonar, að heimili
Núpdalssystkinanna, í grennd við Mountain, N. Dak. Fædd að
Kolgröf í Skagafirði 22. sept. 1862. Foreldrar: Jón Pétursson
og Ingunn kona hans. Hafi dvalið vestan hafs yfir 60 ár.
ÁGÚST 1944
9. Ingibjörg Guðmundsdóttir Westman, ekkja Bjarna Davíðssonar
Westman, kaupmanns í Churchbridge, Sask. (d. 1928), í Win-
nipeg. Kona háöldruð. Faðir hennar var séra Guðmundur
Einarsson, prófastur að Arnarbæli í Árnesýslu.
9. Guðrún Jónsdóttir Johnson, ekkja Jóns Jónssonar (d. 1917), að
heimili dóttur sinnar, Mrs. Þórunnar Guðfinnu Johnson, að
Hvammi í grennd við Riverton, Man. Fædd að Sauðadal á
Vatnsnesi í Húnavatnssýslu 28. nóv. 1860. Foreldrar: Jón Jóns-
son og Ósk Ólafsdóttir ljósmóðir. Fluttist til Vesturheims með
manni sínum 1888.
9. Árni Björnsson, að elliheimilinu “Betel” að Gimli, Man. Fædd-
ur 7. jan. 1870. Foreldrar: Björn Björnsson og Margrét Guð-
mundsdóttir, er bjuggu \'ið Galtalæk í Biskupstungum. Flutti
til Ameríku 1902.
20. Rolfe W. Skúlason lögfræðingur, að heimili sínu i Portland,
Oregon. Fæddur í Grand Forks, N. Dak., 43 ára að aldri. Sonur
Barða Skúlasonar, löfræðings og íslenzks vara-ræðismanns í
Portland. Lauk “Bachelor of Arts” prófi á ríkisháskolanum í
. Oregon 1923 og lagaprófi við Yale hásk'ólann tveirn árum síðar.
-0. Stefán Sigurdson, að heimili sínu í Campbell River, B. C.