Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1945, Side 111
ALMANAK
111
6. Kristín Guðmundsdóttir, að elliheimilinu “Betel” að Gimli,
Man. Fædd að Höfðahólum á Skagaströnd í Húnavanssýslu 5.
nóv. 1852. Foreldrar: Guðmundur Ingimundarson og Sigur-
laug Guðmundsdóttir. Kom vestur um haf 1903.
6. Sigríður Karólína Thorsteinsson, kona Jóns S. Thorsteinssonar,
að heimili sínu í Wynyard, Sask. Fædd 6. marz 1887 í Winni-
peg. Foreldrar: Ilaraldur V. Olson (Jóhannesson), ættaður frá
Húsavík, og Hansína Einarsdóttir Jóhannessonar frá Saltvík.
9. Ásta Emilía Nordal, kona Friðriks Eyfjörð Guðmundssonar
Nordal í Elfros-byggð í Sask., á sjúkrahúsinu í Wadena, Sask.
Fædd að Brimnesi í Fáskrúðsfirði í Suður-Múlasýslu 10. marz
1898. Foreldrar: Árni Torfason, ættaður úr Breiðdal, og Guð-
rún Sigríður Espólín, dóttir séra Hákonar Jónssonar Espólin
fræðimanns. Fluttist til Canada með foreldrum sínum 1903.
9. Frumherjinn Magnús Snowfield, að heimili sínu í Seattle,
Wash. Fæddur að Brú á Jökuldal 1857. Foreldrar: Sigurbjörn
Guðmundsson og Signy Magnúsdóttir. Kom vestur um haf 1879
og til N. Dak. ári síðar og var í hópi fyrstu landnámsmanna
þar. Meðal barna hans eru þeir ríkislögsóknararnir J. M.
Snowfield í Cavalier-héraði og Fred (Friðbjörn) Snowfield í
Pembina-héraði.
10. Sigmundur Sigurðsson Laxdal, að heimili sínu í grennd við
Blaine, Wash. Fæddur 23. okt. 1869 á Krossastöðum á Þela-
rnörk. Foreldrar: Sigurður Sigurðsson og María Guðmunds-
dóttir frá Moldhaugum við Eyjafjörð. Fluttist vestur um haf
með foreldrum sínum árið 1888 og hafði verið búsettur í Garð-
ar-byggð í N. Dak. jafnan síðan nerna tvö síðustu árin.
14. Ágúst G. Polson, á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg. Fædd-
ur að Austur-Görðum í Kelduhverfi í Þingeyjarsýslu 29. júní
1865. Foreldrar: Gunnar Pálsson, ættaður úr Skagafirði, og
Jóhanna Ingjaldsdóttir. Fluttist til Nýjalslands með foreldrum
sínurn 1879, en hafði átt heima í Winnipeg í 46 ár.
18. Bjarni Jones, að heimili sínu í Minneota, Minn. Fæddur 18.
febr. 1859 að Krossavík í Vopnafirði. Foreldrar: Jón Rafnsson
og Rannveig Bjarnadóttir. Fluttist vestur um haf til íslenzku
nýlendunnar í Lincoln County í Minnesota 1879, og hafði átt
þar heirna svo að segja samfleytt síðan. Áhuga og forystumaður
í safnaðarmálum.
24. Tómas Halldórsson, að lieimili sínu í grennd við Mountain,
N. Dak. Fæddur 6. april 1863 á Fremri Hundadal í Miðdölum
í Dalasýslu. Foreldrar: Halldór Þorgilsson og Málmfríður Tóm-
asdóttir, en ólst upp hjá Sumarliða Þorkelssyni og Margréti
Kristínu Tómasdóttur, móðursystur sinni, og fluttist með þeim
til N. Dak. 1882. Varð hann þar landnemi snemma á árum.
Ahugasamur um félagsmál.
27. Vigdís Pálsson frá Riverton, Man., ekkja Sveins Pálssonar (d.
1939), á Almenna sjúkrahúsinu í Winnipeg. Fædd 2. maí 1893