Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Page 21
Almattak
ÚTGEFENDUR: THORGEIRSON COMPANY
Ritstjóri: RICHARD BECK
59 ÁR WINNIPEG, Canada 1953
Hinn nýi forseti íslands
Eftir Richard Beck
Sveinn Björnsson, fyrsti forseti hins íslenzka lýðveldis,
andaðist, eins og löngu er kunnugt, í Reykjavík aðfara-
nótt hins 25. janúar 1952. Átti þjóðin með honum á bak
að sjá einum af sínum allra ágætustu sonum, er unnið
hafði sér fágætar ástsældir fyrir margþætt þjóðnýt störf,
mannkosti og farsæla forystuhæfileika. Mun óhætt mega
segja, að eftirfarandi ummæli Steingríms Steinþórssonar,
forsætisráðherra Islands, er hann tilkynnti þjóðinni í út-
varpi lát forsetans, hafi verið töluð beint út úr hjarta
hennar:
“Islenzka þjóðin mun jafnan minnast hins mikilhæfa,
góðviljaða og hugljúfa forseta síns með virðingu og þökk
og meta að verðleikum störf hans í þágu lands og lýðs,
bæði meðan hann gegndi vandasömu sendiherraembætti