Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Blaðsíða 42
42
ÓLAFUK S. THORGEIRSSON:
ert Svein, Michael, og David Bruce; 2. Oddný Margrét,
hjúkrunarkona, Blairmore, Alberta; og 3. Þórunn Jose-
phina (Mrs. John Norek), Esterhazy, Sask., en þeirra böm:
John Howard og Margaret Josephina.
Þorsteinn Sigurðsson, móðurbróðir Sveins Vopna, kom
í Geraldbyggð 1904, en fluttist með þeixn bræðrum Sveins,
Sigurði og jóni, vestur til Kandahar 1918; er Sjgurður
þar enn, en Jón fluttur þaðan norður í land. Jósep Jósa-
fatsson, mágur Þorsteins Sigurðssonar, kom til Gerald um
sama leyti og hann, en fluttist til Mozart, Sask., með fyrri
hópnum úr Geraldbyggð árið 1912. er síðar verður getið.
Kristján Pálsson var fæddur í Tungu í Fáskrúðsfirði
1866, en kom vestur um haf með foreldrum sínum, Páli
Jónssyni frá Tungu og Ólöfu Níelsdóttur frá Kirkjubóli í
Fáskrúðsfirði, í “stóra hópnum” 1876; þau námu land
þrjár mílur vestan við Gimli og voru fjögur ár í Nýja-ls-
landi; fóru þá til Winnipeg og voru þar allmörg ár, því-
næst eitt eða tvö ár norður við Manitobavatn, síðan um
tíma í Argyle, og fluttu þaðan til Gerald aldamótaárið.
Kristján, er verið hafði mörg ár í Winnipeg og síðan í
Argyle, flutti samtímis til Gerald og nam þar land. Kona
hans, Jónína Þórunn Eyjólfsdóttir Guðmundssonar, var
einnig ættuð afAusturlandi og fluttist ung vestur um haf.
Börn Kristjáns og Jónínu: 1. Albert Níels, 2. Louis
Harald, 3. Arthur Kristján, 4. Edward Martin (kvæntur
og á tvö börn), 5. Herman Edward, 6. Ólöf Þórunn, 7.
Anna Gladys (Mrs. S. B. Revkjalín, Langenburg, Sask.,
eiga fimin börn, og 8. Elín Kristín, gift John Slobozian,
skólastjóra í Dauphin, Man., og eiga þau þrjú börn.
Kristján tók mikinn þátt í opinberum málum og var
forystumaður í sveitarmálum, sveitarráðsmaður í Gerald-
byggð þangað til sveitarfélag (municipality) var þar form-
lega myndað um 1910, og uin skeið formaður sveitarráðs.
Björn Pálsson (Paulson) lögfræðingur, bróðir Kristjáns,
kom einnig með foreldrum sínum til Gerald og tók heim-