Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Blaðsíða 46
46 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
ur-lslendingum að ganga á undan með þá viðleitni að
klæða Island skógi. Eins og mairgir Islendingar hér vestra
unni hann Islandi hugástum, og hann vildi eitthvað gera
því til gagns. Að klæða landið skógi fannst honum eitt,
sem væri landi og þjóð til mestrar blessunar; hann hafði
tröllatrú á því, að trjátegundir ýmsar, sem þrífast vel á
svipuðu breiddarstigi í Canada, myndu þrífast vel á Is-
landi. Hann hafði verið svo árum skipti við veiðimennsku
í skógum og evðibyggðum Norður-Kanada, kynnt sér
skógrækt og haft samband við ýmsa sérfræðinga í þeirri
grein. Hann flutti mál sitt vel og skipulega, en ekki fékk
hann mikinn byr í seglin.
Björn Magnússon var fæddnr 5. júlí 1876 á Grímsstöð-
um við Reykjavík. Faðir hans var Magnús Þorkelsson
llafnssonar Ólafssonar bónda á Krossi í Skagafirði. Móðir
hans var Vigdís Guðmundsdóttir, kona Magnúsar.
Björn segir svo frá, að faðir sinn hafi átt ættartölu
sína, þar sem ætt hans er rakin til Þormóðs heljarskinns,
en ættartalan glataðist í eldsvoða. Guðmundur móður-
faðir Björns var Gissursson Magnússonar. Helgasonar
bónda í námunda við Reykjavík.
Föðuramma Björns, en kona Þorkels, var Margrét
Guðmundsdóttir frá Gröf í Skagafirði; en móðuramma
hans, kona Guðmundar, var Ingibjörg Jónsdóttir Evvind-
arsonar, bónda á Hlíðarenda í Ölfnsi í Árnessýslu.
Árið 1877 flúttu foreldrar Björns að Auðnum á Vatns-
leysuströnd; þar dó Magnús í húsbruna 3. október 1885,
og þar fór með honum ættartalan, sem áður er nefnd.l)
1) Björn slapp úr eldinum á einni léreftsskyrtu; faðir lians dó við
að bjarga mönnum; móðir hans var fjarverandi, var í heimsókn hjá
bróður síniun uppi í sveit. “Daginn eftir kom Egill Guðmundsson
frá Þórisstöðum (Vatnsleysuströnd) og tók mig til vetrardvalar
klæðlausan; liann sannarlega gekk mér i föður stað. Ilann kenndi
mér að skrifa, líka reikning, samlagningu, frádrátt, margföldun, og
aðferð að deila; líka lærði eg á hlaupum dönskusletting, sem al-
gengt var um börn í sjávarþorpum.” Frásögn Björns milli gæsa-