Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Page 56
56 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
síðan hann var á ferð hér vestra, og eru honum þakklátir
fyrir áhuga hans á framhaldancli ætternis- og menningar-
tengslum milli fslendinga vestan hafs og austan. Þetta
kvæði hans má og skoða sem kveðju til þeirra í heild
sinni, þó stílað sé sérstaklega til eins úr þeirra hópi.
Skúli Hrútfjörð (eða Skuli Ii. Ruthford eins og hann
heitir að amerískum hætti) er vestur-íslenzkur búfræð-
ingur, aðstoðarforstjóri upplýsingastofnunar Minnesota-
ríkis í landbúnaðarmálum, búsettur í Minneapolis. Ferð-
aðist hann um fsland seinni hluta síðastliðins sumars og
fram á haust á vegum landbúnaðarráðuneytisins til þess
að kynnast íslenzkum landbúnaði og búskaparháttum ís-
lenzkra bænda, og gera síðan tillögur um hagnýtingu nýj-
ustu þekkingar í landbúnaðarvísindum íslenzkum bænd-
um til hagsbóta.
Eins og fram kemur í kvæðinu á Skúli rætur að rekja
í Dali vestur og Hrútafjörð, en foreldrar lians voru þor-
leifur Guðmundsson, ættaður frá Vígholtsstöðum í Lax-
árdal í Dalasýslu, en fluttist vestur um haf úr Hrútafirði,
og kona hans, Sólveig Björnsdóttir, er ættuð var úr Eyja-
firði. Áttu þau um langt skeið bólfestu í Duluth, Minn.
R. Beck