Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Page 57
Nokkur sendibréf frá
Jóhanni Magnúsi Bjarnasyni
til
Eyjólfs S. Guðmundssonar
Eins og Jóhann Magniis Bjarnason tekur fram í minn-
ingargrein sinni um Eyjólf S. Guðmundsson í Tímariti
Þjóðræknisfélagsins fyrir árið 1937, skrifuðust þeir á ára-
tugum saman; hófust bréfaskipti þeirra um aldamótin,
voru strjál framan af, enda átti Jóhann Magnús við heilsu-
leysi að stríða fyrstu ár aldarinnar, en eftir 1910 urðu
bréfin þeirra í milli tíðari, einkum síðari árin, allt fram
til þess, að Eyjólfur lést í ársbyrjun 1938, en æfiatriða
hans hefir áður verið getið hér í ritinu, og vísast þangað.
Hér fara á eftir nokkur af bréfum Jóhanns til þessa góð-
vinar hans framan af árum bréfaskipta þeirra, og varpa
bréfin með ýmsum hætti ljósi á líf skáldsins og kjör, hugð-
armál hans og lífsskoðanir. — Ritstj.
Geysir, Man.
22. marz 1900
Kæri herra:—
Bréf þitt af 8. febr. meðtekið. Eg fékk það ekki fyrr
en eg kom liingað til Geysis, nú í þessum mánuði; eg hef
dvalið á þriðja mánuð í Winnipeg—hef stundað nám við
kennaraskólann þar.