Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Síða 59
ALMANAK 59
en öll voru þau áhrærandi söguna mína “Eirík Hansson”.
Sagan hefur vakið eftirtekt margra ágætra manna, svo eg
er nærri stoltur af því. Og aldrei hef eg vitað fyrr en í
vor, hvaða grúi það er af útlendingum, sem lesa íslenzku.
Mest er það þó á meðal Þjóðverja, og eins töluvert á með-
al Englendinga. Og nú er prófessor Karl Kuchler byrjað-
ur að þýða fyrsta þáttinn af “Eiríki Hansson” á þvzku.
á'eit eg fyrir víst, að sagan tapar engu í þeirri þýðingu.
Eg er þér sérlega þakklátur fyrir þín vingjarnlegu orð
um rit mín, og mér þykir bréf þitt vera bæði gott og skáld-
legt. Hugmynd þín um mig er mjög nærri sanni, livað
útlít mitt snertir. Eg er hár og grannur, hef góða vöðva,
og hef þótt snar og léttfær. Að öðru leyti má eg ekki
lvsa sjálfum mér, því hætt er við, að lvsingin yrði að hóli.
En hverra manna ert þú? Hvað ertu gamall? Og við
hvað vinnur þú helzt? Mætti eg fá að sjá eitthvað, sem
þú hefur ort? Fyrirgefðu spurningarnar.
Líði þér ætíð sem bezt.
Eg er þinn einl.
J. Magnús Bjarnason
Hallson, N. Dak.
5. júní 1905
Kæri vinur:—
Innilegustu þakkir fyrir þitt góða og skemmtilega
bréf, sem eg fékk fyrir fáum dögum síðan. Það hryggir
mig að frétta, að þú skulir alltaf vera svo heilsu-tæpur,
en eg óska og vona, að þú frískist þegar fram á sumarið
kemur. — Eg er dável frískur og geri allt, sem eg get,
fyrir heilsuna. Eg viðhef stöðug vatnsböð, það er að
segja á hverjum morgni, eg er alveg hættur að drekka
kaffi, og eg geng fleiri mílur á hverjum degi, og hefi ýms-
ar aðrar líkamsæfingar. Eg er farinn sofna snenima á
kvöldin, og sef vært langt fram á dag. Eg er að verða að