Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Síða 64
64
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Eg er nú að lesa í annað sinn bók Kuchlers um Island.
Hann lýsir landslaginu meistaralega og talar svo vin-
gjarnlega um allt og alla. En einna mest fanst honum
varið í að koma á Þingvöll; og hann segir, eins og Lord
Dufferin, að það sé tilvinnandi að ferðast hringinn í
kringum hnöttinn til að sjá þann stað. Flestar myndirnar
í bókinni eru eftir Kuchler sjálfan og eru þær allar frem-
ur skýrar. Eg minnist ekki að hafa lesið skemmtilegri bók
um ísland, á útlendu máli, en þessa. Aftast í bókinni er
dálítið kvæði á íslenzku eftir Kuchler sjálfan; sýnir það,
hvaða vald hann hefur á íslénzku máli. I bókinni eru
nokkur kvæði íslenzk í þýzkri þýðingu; þar á meðal er
kvæðið “Gunnarshólmi”, “Skúlaskeið” og “Fögur er vor
fósturjörð”. Kvæðin eru þvdd af J. C. Poestion í Vínar-
borg, og eru þau meistaralega þýdd.
Það er nú eins og vant er fyrir mér, eg get ekki skrifað
nema örfáar línur. Eg er eins og karlinn í leikritinu einu
eftir hann Holberg danska: alltaf í annríki. Fyrir utan
skólann og búverkabaslið er eg bundin við að segja tveim-
ur piltum til í latínu og þýzku—þeir eru að búa sig undir
eollege—og svo er eg að hjálpa til að æfa sjónarleik all-
langan og umfangsmikinn.
Með bestn óskum er eg,
Þinn vinur,
J. Magnús Bjarnason
Marshland, Man.
5. ágúst 1907
Kæri vinur:—
Mikið má eg skammast mín fyrir að draga svona lengi
að svara þínu góða bréfi, dags. 23. júní. Eg þakka þér
hjartanlega fyrir það bréf, eins og allt annað. Alltaf hefi
eg fengið “Óðinn” með góðum skilum— bezta þakklæti
fyrir—nú sendi eg þér öll blöðin aftur.