Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Side 82
82 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
umanna þingsins var gucjfræðikandidat Þórir Kr. Þórðar-
son úr Reykjavík, er stundar framhaldsnám í gamla testa-
mentisfærðum við Háskólann í Chicago.
1. júlí—Frá þeim degi að telja var Jón K. Laxdal, sem
gegnt hafði kennaraembætti við Kennaraskóla Manitoba-
fylkis (Manitoba Provincial Normal School) í Winnipeg
síðan 1947, skipaður aðstoðarskólastjóri þeirrar mennta-
stofnunar.
1. júlí—Landnámshátíð Norður-Nýja Islands haldin að
Iðavelli við Hnausa.
Júlí—f þeim mánuði átti ársfjórðungsritið “The Ice-
landic Canadian” 10 ára afmæli, og var þess minnst með
útgáfu sérstaks afmælisheftis. Fyrsti ritstjórinn var frú
Laura Goodman Salverson skáldkona, þvínæst um hríð
W. J. Lindal dómari, og síðustu árin frú Hólmfríður
Daníelson.
13. júlí—Séra Jóhann Friðriksson settur inn í embætti
sitt sem prestur Argyle prestakalls af séra Valdimar J.
Eylands, forseta lúterska kirkjufélagsins; samdægurs var
séra Stefán Guttormsson settur í embætti sem prestur
lúterska safnaðarins í Cavalier, N. Dak.; framkvæmdi
faðir hans, séra Guttormur Guttormsson í Minneota,
Minn., innsetniilguna.
27. júlí—Islendingadagur haldinn í Blaine, Wash.
Júlí—Laust fyrir lok mánaðarins lagði William M.
Benidickson, þingmaður Rainy lliver kjördæmisins í Ont-
ario, af stað til Islands, til að mæta fvrir hönd Canada
við irinsetningu hins nýkjörna forseta Islands, herra Ás-
geirs Ásgeirssonar, í embætti sitt; í för með þingmannin-
um var faðir hans, Kristján Benidickson í Winnipeg, fyr-
rum kaupmaður (ættaður úr Skagafirði), er dvalið liafði
vestan hafs hátt á sjötta áratug. Áður en Benidickson
þingmaður hvarf vestur um haf, sæmdi forseti Islands
hann stórriddarakrossi hinnar íslenzku Fálkaorðu.
3. ágúst—Islendingadagur haldinn að Silver Lake.