Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1953, Page 86
86
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Nóv.—Við skólasetningu United College í Winnipeg
var Wilhelmina Jónsson Mabb, B.A., sæmd bronze-verð-
launapeningi landstjórans fyrir að hafa hlotið hæztu ein-
kunn á öðru, þriðja og fjórða ári sínu við háskólanámið.
(Sjá um ætt hennar og námsferil hér að framan.)
Nóv.—Dr. A. P. Árnason, sem áður hafði veitt forstöðu
rannsóknarstofu sambandsstjórnar í skordýrafræði í Sask-
atoon, Sask., skipaður aðalaðstoðarmaður yfirumsjónar-
manns slíkra rannsókna í Ottawa af hálfu landbúnaðar-
ráðuneytisins. Hann er uppalinn í Vatnabyggðunum í
Saskatchewan, brautskráður af fylkisháskólanum í Sas-
katchewan 1929, tók þar tveim árum síðar meistarapróf,
en doktorspróf við ríkisháskólann í lllinois 1942.
28. nóv,—Tíu ára afmælis Víkingafélagsins (The Viking
Club) í Winnipeg minnst með samsæti þar í borg; dr.
Richard Beck, heiðursfélagi klúbbsins, flutti aðalræðuna.
Frá upphafi vega hafa Islendingar tekið mikinn þátt í
starfsemi klúbbsins, og núverandi varaforseti hans er
Guðman Levy, rafvirki í Winnipeg.