Fróði - 01.09.1913, Page 49

Fróði - 01.09.1913, Page 49
FROÐI 4 9 viö vorum börn. Mér er svo heitt um lijartaræturnar, aö ég held aö mér líöi í brjóst — bara af ánægju.’’ “Langar þig til aö kaupa bújörð, bát, eða taka fyrir verzlunar- störf?” spurði banka-eigandinn. “HvaS sem ykkur sýnist”, svaraði stúlkan. “öll staða verður mér Paradís viö hliö hans.” Karl faöir hennar kom nú út úr húsinu. “Peningarnir standa heima”, mælti hann. “Ég er búitin aS telja þá.” Það fór eins og unglingurinn haföi spáð. Karl leit þakklát- um augum til himins og mælti: “Guð blessi ykkur, börnin mín!” “Nú verð ég að fara”, mælti Asabri. “En eitt er eftir; því má ekki gleyma.” Fjögur tindrandi augu litu til hans spyi'jandi. “Þið hafið ekki kyst hvort annað enn”, sagði hann. “Gerið það, svo að ég muni eftir því.” • Elskendurnir vöfðu hvort annað örmum, og kystust innilega. “Ég er að cins nítján ára,” sagði ungi maðurinn með við- kvæmnií.” Hann leit tárvotum augum til himins og bætti við: “Guð hjálpi mér til aö gleyma árunurn, sem ég hefi illa varlð, og fyrir- gefi mér.” Asabri ók heim til Rómahorgar. Ljósin á framstafni bifreið- ar hans sýndu honum veginn. Kampavinið og áhrif þess voru horf- in. Hann athugaði rólega dagsverk sitt. “Að hugsa sér það”, sagði hann við sjálfan sig, “að annað eins smáræði og hundrað og fimtiu þúsund lírar, skuli geta gert gamlan, ríkan mann, ungan í annað sinn, þótt ekki sé nema um tveggja daga skeið.” Klukkan var orðin eitt eftir miðnætti, er hann kom til hallar Sinnar í Róm. Þjónninn hans, hann Kuigi, beið eftir honum að vanda. “Þþtta er önnur nóttin, sem þér hafið verið úti, síðustu þrjú dægur,” mælti þjónninn mjög sorgbitinn og súr á svip. Því næst hætti hann þessum ógnunar-orðum við: “Símskeyti gætu kallað frúna heim til Róm á skömmum tíma.”

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.