Dýravinurinn - 01.01.1895, Side 42
Um slátrun.
Margir hjer á landi eru nú farnir að viðurkenna, að skepnur þær, sem
pjóna þeim og eru lífsbjörg þeírra, eigi betra skilið en þær liaf'a átt áður að
venjast; þannig er nú víða vaknaður áhugi á því, að breyta til með slátrun-
araðferð búpenings, en ekki eru mcnn þó emi búnir að átta sig á, hver að-
ferðin só heppilegust. Flestir kannast við það, að hálsskurður er hroðaleg og
kvalafull affifan, en vegna vanans kynoka mcnn sér þó við að taka upp aðra
aðferð. Mín skoðun er sú, að alla stórgripi ætti að skjóta, en rota sauðfje.
Reyndar væri æskilegt að hver búandi maður ætti skammbyssu til að skjóta
með sauðfjenað sinn, en jeg er hræddur um að flestum þvki það of kostnað-
arsamt, og jeg álít það þess vegna árangurslítið að fara fram á það í bráð;
auk þess er sú slátrunaraðfei ð eigi heppileg í sumum tilfellum, t. d. í slát-
urtíð í kaupstöðum á haustin, þegar daglega er slátrað mörgum hundruðum
sauðkinda, skothríð sú, sem af svo niiklu drápi leiddi, mundi lftt þolandi fyrir
bæjarbúa og fyrir skepnur þær, er dauðans biðu þar á staðnnm. A sveita-
heimilum þyrfti þetta hvorugt að verða til fyrirstöðu, og væri þvf æskilegt
að framtakssamir dýravinir reyndu þessa aðferð jafnlramt helgrímnnni til
þess að fá reynslu fyrir þvf, hvora aðferðina menn almennt yrðu viljugri að
taka upp. Rothögg er jafngott byssuskoti, eí hvorugt misheppnast. Helgrím-
an er að eins hjálparverkfæri til þess að hylja sjón skepnunnar og gera rot-
höggið óskeikulla, og er sjálfsagt að nota hana eingöngu, þegar slátrað er í
kaupstöðum á baustin.
Hina svo nefndu svœfing het jeg áður meira þekkt af afspurn en eig-
in reynslu, þangað til jeg næstliðinn vetur lagði stund á að aðgæta ástand
skepnanna eptir að búið var að svæfa þær. .Jeg komst þá að þeirri niður-
stöðu, að jeg ekki þori að ráða til þeirrar slátrunaraðferðar fyr en hún hefur
verið ýtarlega rannsökuð. Jeg gat sem sje ekki betur sjeð, en að skepnan
hefði nokkra meðvitund og tiifinning þangað til nærfellt hcltningur af blóði
var runninn úr henni, en hvort sú tilíinning hefur verið sár eða kvalafull,
skal jeg ekki dæma um, fyr en það verður. gjör rannsakað.
Það er eðlilegt að skepnan detti str.tx niður þegar mænan er skorin
sundur, og geti ekki brotizt um, en hætt er við að breytingin á heilanum og
taugum þeim, sem liggja um höfuðið, sé minni en menn í fljótu bragði ætla.