Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 3

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 3
IÐUNN Uppreisnarmaður. (Carl Snoilshy.) Um kirkjugarðinn gustur haustsins fer, að gráum rúðum skólans laufin ber og jjpr/ar fyrir glugga bleikum blöðum. Þar inni sitja piltar bekk við bekk, sem bundnir væru sterkum töfrahlekk, — hver barmur knúinn hjartaslögum hröðum. 1 voðarómi, er rymur alt í kring, þá reynir kennarinn í sagnbeyging og gefur hvorki frest né fyrirvara. Á augnabliki’ er lævíst líður burt, skal Iatínuna finna', er um var spurt, unz nafn hann kallar. Þá skal seimlaust svara. Einn hrekkur upp sem skotinn strax í stað, en stamar bara — ekki meira um það — fær góðan kinnhest, granninn spurninguna. Svo gengur fræðslan öll í sömu átt, en eitt ég fékk að vita á þennan hátt, að taugar hef ég, — það ég mátti muna. Hve óralangur oss var tími sá! Og augun læddust sífelt til að gá hvort klukkan yrði aldrei tólf þann daginn. Þá skyldi matast — gleypa samt í sig —1 og síðan lesa undir drep og slig, því klukkan þrjú skyldi’ aftur byrja braginn. Iðunn XI. 12

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.