Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 9

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 9
ÍÐUNN Tvær konur. 179 bókaskápinn og sagði: »Dlessaður lánaðu mér nú ein- hverja bók, sem gaman er að«. Ég lánaði honum eitt bindið af »Þúsund og ein nótt«. Skömmu síðar kemur hann með bókina aftur og segir: »Blessaður lánaðu mér eitthvað annað en þessa vitleysu. Þessar sögur eru svo vitlausar, að það er ekki einu sinni hægt að hafa gaman af þeim«. Ég starði á hann með undrun, en svaraði engu. Ég lánaði honum »Urskurð hjartans«, neð- anmálssögu úr Vísi. Það þótti honum ágæt bók. Þegar ég var aftur orðinn einn, fór ég að hugsa um þetta atvik. Mér fanst það furðulegt, að nokkrum þæfti »Þúsund og ein nótt« svo vitlaus, að ekki væri hægt að hafa gaman af henni. Sjálfur hafði ég haft það. En hafði ég þá ekki samt álitið þetta vitleysu? Satt að segja hafði ég aldrei lesið »Þúsund og ein nótt« með það fyrir augum, að finna vit í henni. Ég hafði lesið hana mér til dægrastyttingar eins og »Cymbilínu fögru«, »Kapítólu« o. s. frv. Ég hafði lesið í sama tilgangi eins og ég hlustaði á er mér voru sagðar sögur í vöku. Hugfanginn, en hugsunarlaust hafði ég lesið, eins og menn eiga ekki að lesa það, sem vit er í. Það hafði nú einhvernveginn síast inn í mig, frá mér vitrari mönn- um, að mikið vit væri í »Þúsund og ein nótt«. Nú ein- setti ég mér að reyna sjálfur að finna það vit, ef nokk- urt væri, svo að ég stæði ekki orðlaus eins og afglapi ef einhver kallaði hana vitleysu. Ég fletti upp fyrstu blaðsíð- unni í einu bindinu. Þar sá ég mynd af ríðandi konu. Neðan undir stóð Parisade. Ég ákvað að leita að viti í sögunni af Parisade, og byrjaði að lesa. Sagan er svo löng, að ég get ekki sagt yður nema örlítinn útdrátt úr henni, en einhverja grein verð ég að gera fyrir henni, af því að Parisade er einmitt önnur konan, sem ég ætlaði að tala um við yður.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.