Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 17

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 17
IÐUNN Tvær konur. 187 Hrotið er þungt í hverri kró, hrökkur upp stöku maður þó, púar á ioðinn ljóra: „Hvergi greinir skýjaskil. Skelfing er af myrkri tii. Skyldi tunglið tóra? Það er fyrir fjúki að dreyma hann Móra“. Það er fyrst þegar þjóðin festir augun á frelsishug- sjcninni á fjallstindinum, að hún réttir úr bakinu og brýtur af sér okið. Hversvegna erum vér nú frjálsir menn í frjálsu landi? Af því að vér áttum menn, sem aldrei mistu sjónar á hugsjón sinni. Þeir klifu brattann og komust upp á tindinn. Því miður höfum vér ekki verið eins heppnir á öllum sviðum sem þessu. Sjálfstæðisþráin greip þjóðina fyrir óeigingjarna baráttu hugsjónamannanna; en annars hafa ekki göfugar, víðfaðma hugsjónir verið neitt sérstakt einkenni á þjóðlífi voru hvorki fyr né síðar. »Mörland- inn stirfinn og trúlaus«, kallaði einn rithöfundur vor oss, fyrir nokkrum árum. Því miður er nokkuð til í þessu. Islendingseðlið er dálítið »stirfið«, eins og eðlilegt er eftir margra alda áþján þjóðarinnar, sem um langan aldur var fótaþurka erlends valds. Ef ég ætti að nefna nokkuð, sem mér finst þjóðina skorta fremur öðru, þá nefndi ég: fastlyncla og stórhuga menn, víðsýna og fé- lagslynda. Fjarskalega mörgum hættir til að loka sig inni í sjálfum sér, ef ég mætti komast svo að orði. Byrgja sig inni fyrir öllu félagslífi, en hugsa um það eitt, að sjá sjálfum sér borgið, á kostnað annara ef ekki vill betur til. Manni virðist stundum víðsýnið ekki mikið, sjóndeildarhringurinn dálítið áþekkur hringboga krónu- peningsins. Það skal þó játað, að á síðasta mannsaldri hefir þjóðinni nokkuð þokað áfram í hugsjónaáttina. Eg

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.