Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 26

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 26
196 Tvær konur. IÐUNN foreldra minna. Það vantaði ekki að það átti að troða í okkur miklu af því, sem í daglegu tali kallast mentun„ Sex tungumál var okkur ætlað að nema og bókmenta- sögur þriggja þjóða, auk alls annars: efnafræði, eðlis- fræði, stærðfræði, sagnfræði, grasafræði, steinafræði, stjörnufræði, ljósfræði og aðra náttúrufræði auk þessa í einum 3—4 Iiðum. Auðvitað varð þetta ekki nema argvítugur yfirborðslærdómur, jafnvel hjá þeim bestu, en gat þó komið að nokkru haldi, ef mentaþráin hefði verið glædd, svo að stúdentsprófið hefði ekki orðið eins og lausn úr fangelsi. En því miður varð skólalífið ekki til þess að auka mentaþrána, heldur til þess að draga úr henni, eins og allur bragurinn var þar í minni tíð. Samt má vel vera að skólinn hafi orðið einstaka manni mentaskóli og borið að því leyti nafn með rentu. En ég efast um að hann hafi þá orðið nokkrum manni menningarskóli; ég veit að sumum hefir hann orðið hið gagnstæða. Ég hefi átt tal um þetta vandamál við ýmsa nemendur unga og gamla, frá ýms- um skólum, og revnsla þeirra flestra hefir verið lík reynslu minni af Mentaskólanum. Uppeldistakmarkið hefir verið mentun en ekki menning. Fræðsla en ekki þrosk- un. Vér höfum vanrækt að ala upp lifandi menn. Vér gerum unglingana að dauðum og hugsjónasnauðum salt- stólpum. Alt er miðað við »hagnýta gagnfræði*, svo að unglingarnir verði sem færastir í baráttunni um ætið, sem þeim er varpað út í að loknu námi. Hvernig þeirri baráttu er háttað og hver afleiðing hennar verður í þessum heimi, láta skólarnir sig litlu skifta, hvað þá að þeir skygnist lengra fram á þroskabraut mannanna. Fyrir mér vakir það sem aðalmarkmið mentastofnana, að þær verði skjólgarður, þar sem hugsjónalíf og stað- festa unglinganna fái að þróast, í vari fyrir norðangarði

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.