Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 36

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 36
206 Askja í Dyngjufjöllum. IÐUNN stór landspilda, um 50—60 ferkm. að flatarmáli. Þessi djúpa lægð hefir sporöskjulögun og hallar henni lítið eitt frá suðvestri til norðausturs. Dalverpi þetta hefir hlotið nafnið Askja, og er hún c. 1050 m. yfir sjávarmál. — Þegar farið er í Öskju úr Mývatnssveit eða Svart- árkoti, fremsta bæ í Bárðardal, er stefnt til suðausturs upp með Suðurá, sem kemur upp í Ódáðahrauni og rennur gegnum það í Skjálfandafljót. Frá. upptökum Suðurár (Suðurár-Botnum) er farið yfir breiða spildu af hrauninu að norðvesturhorni Dyngjufjalla; má það kallast dável greiðfært hestum. Frá norðvesturhorni fjallanna er svo um þrjár leiðir að velja. Hin fyrsta er austur með Dyngjufjöllum að norðan og inn um skarð norðaustur úr Öskju-dalverp- inu, sem heitir Oskjuop. Stefna skarðsins úr Öskju er á Herðubreið. Þ. Thoroddsen fór þar um þegar hann kom í Öskju 1884. Þar er fjallgarðurinn klofinn fylli- lega niður á móts við Öskjubotn, og hallar skarðinu töluvert austur úr fjöllunum. Eftir því hafa runnið afar- mikil hraunflóð úr Öskju fyr og síðar, og er hraun- hryggurinn eftir því miðju ófær hestum, nema upp við Öskjubotninn og þó illfært þar líka. En út og inn um skarðið má fara meðfram hlíðunum. Rétt meðfram fjöll- unum að norðan er og greiðfært af því að sandur og möl ofan úr fjöllunum hefir jafnast þar yfir hraunið. Önnur leið í Öskju liggur upp í eystri fjöllin við norðvesturhornið, upp úr mynni Dyngjufjalladals í Jóns- skarð, sem er ofarlega í fjöllunum, og er þá farið í norðvesturhorn Öskju. Þetta er styzta leiðin í Öskju og hefir mest verið farin af ferðamönnum undanfarin ár. Skarðið dregur nafn af Jóni Þorkelssyni frá Víðirkeri, sem fylgdi próf. Johnstrup í gegnum það 1876. Jóns-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.