Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Side 50
220
Foksandur.
IÐUNN
við það, er S. N. hefir látið uppi. Eg geri ráð fyrir, að
Víga-Styr hafi í þessu efni verið eins farið og öðrum
mönnum. En merkilega lítið er það í fari hans, eftir því
sem oss er frá honum skýrt, sem ekki er beinlínis ilt.
Til dæmis um mannkosti hans bendir S. N. á það, að
hann hafi ekki verið undirförull.
Og-jæja. Það er nú um þetta mál eins og önnur, að
það er eins og það er virt.
Styr tekur tvo menn á heimili sitt, sem ekkert hafa
gert á hluta hans og ekki vænta annars en góðs af
honum. Hann notar þá fyrst til þess að hjálpa sér til
þess að vinna níðingsverk, drepa um nótt gamlan mann
í rúmi sínu, mann, sem verður svo vel viðdauða sínum,
að hann kveðst hvorki muni flýja né friðar biðja, segist
senn kominn að fótum fram, og þeir megi gera hvað
þeir geti. Að þessu afreksverki loknu, hefir hann
hinn mesta fagurgala í frammi við þessa griðmenn sína
— svo mikinn, að annar þeirra skilur Styr svo, sem
hann ætli að gifta honum dóttur sína. En fagurgalinn er
í því augnamiði einu að fá hentugt færi á að ráða þá
af dögum. Hann lætur þá örþreyta sig, til þess að þeir
skuli verða því viðráðanlegri. Og þegar þeir koma heim
eftir stritið, reynir hann að sjóða þá lifandi. Honum
tekst það með annan þeirra. Hinn fær brotist út; en
honum verður fótaskortur á hráblautri uxahúð, sem Styr
hefir lagt á leið hans. Styr er þar fyrir með reidda öxi
og heggur á háls honum.
Eg geng að því vísu að S. N. kunni meira í íslenzku,
en eg. En skilist hefir mér svo, sem annað eins atferli
og þetta sé meðal annars nefnt undirferli á íslenzku.
S. N. telur Víga-Styr ekki undirförulan, af því að ann-
ar maður hafi lagt á ráðin um þetta einstæða illvirki.
Víga-Styr er ekki undirförull eftir hans skilningi, af því