Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 77

Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1927, Page 77
IÐUNN Mannsbarn. 247 vopn, hefjið hátt rauða gunnfánann! Látið máttugt hljóma Alþjóðasönginn! Látið réttlæti ríkja á jörðu! Lifi öreigar! Lifi Marxkenning! Lifi bylting! Ðurt burgeisa! Burt auðvald! Upp rís þú, sem eymdin drekkir, örmagnaði þrælaher! Gremju vakið vitið kallar að vinna frelsi handa þér. Gamall heimur hrynji að grunni. Harðstjórarnir bygðu valt. Upp vér nýjan aftur byggjum. Ekki núll, vér séum alt. Hana þá — í staðnum, ætlaða hugsjónamönnum! Fjórir steinveggir. Rakir, myglaðir. Gólf — skítabæli, skemtigangsvið rottum. Loft — grafletursspjald. Mannsbarn horfir út um ryðgaðar járngrindur. Úfið höfuð hans sýnist úti hausttungl í skýjum. Frelsi! Frelsi! Fyrir utan dyrnar gengur stöðuvörður. Með byssu. Mannsbarn hristir hlekkina. Ég vil lifa! Ég vil lifa! Kallar fugl undir himni, kallar fiskur í vatni, kallar dýr í skógi. Einungis maður á ekki rétt á að lifa, vill ekki lifa, lætur ekki heldur aðra lifa! Hann kúgar, þrælkar, drepur, hneppir í varðhald! Mannsbarn grætur. Maður! Maður! Maður, ég elska þig! Maður, ég aumka þig!

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.