Kirkjuritið - 01.04.1935, Page 19
Kirkjuritið.
Stanley Jones.
139
þér heyrið, að ég get ekki prédikað. En ég elska Jesúm
Krist. Hann hefir gjörbreytt lifi mínu, og þó ég geti ekki
prédikað, verð ég þó að bera Kristi vitni, svo að ég eigi
frið i hjarta mínu“.
Ræðan þessi varð ekki lengri. En hún hafði áhrif. Við
lok samkomunnar kom fram ungur maður og sagði við
Jones. „Bróðir, bið þú fyrir mér, því að mig langar að
finna það, sem þú hefir fundið“. Stanley Jones fánn
þetta kvöld, að hann átti að verða vottur Krists, og það
hefir hann verið síðan alla ævi. Og röddinni, sem liann
þá og áður hafði heyrt tala til sín, hefir hann ætíð hlýtt
síðan skilyrðislaust, hvað sem hún lagði fyrir hann. í
ritum sínum talar hann oft um þessa innri rödd, þessa
rödd andans, sem hann hefir ætíð hlýtt, eins og Páll
forðum, að því er Postulasagan vottar hvað eftir annað.
Ég verð enn stuttlega að segja frá einu atriði, síðustu
prófrauninni, sem dr. Jones varð að þreyta, áður en
hið eiginlega starf hans hófst. Þessi útvaldi þjónn drott-
ins varð að reyna á sjálfum sér þunga alvöru þessara
orða Jesú: „Hver, sem ann föður eða móður meir en
mér, er mín ekki verður“. Meðan liann var að ljúka
námi sínu við Ashbury College, bauð röddin honum,
að verða kristniboði. Fanst honum, að Afríka hlyti að
þarfnast hans mest. Þetta sagði liann móður sinni i
hréfi, er hann ritaði henni heim til Baltimore, og fann
hann á svarbréfi hennar, að hún tók þetta mjög nærri
sér, að eiga að missa hann þannig hurtu til hins „myrka
meginlands“. Litlu síðar fær hann svolátandi skeyti frá
þróður sínum heima: „Komdu fljótt heim. Mamma er
að deyja“. Dr. Jones segir sjálfur: „Ég settist inn í járn-
brautarvagninh. I eyrum mér þrumaði þung ákæra:
Þetta er trúboða-köllun þinni að kenna. Þú veldur
dauða móður þinnar“. Nýtt hugarstríð hófst. „Ef ég læt
undan óskum he'nnar, og starfa hér heima, mun hún
hfa. En ef ég gjöri þetta, sem röddin býður mér, og
ég veit, að er Guðs vilji, mun hún deyja“. Ég elska