Kirkjuritið - 01.04.1935, Page 56
Kirkjuritið.
SÉRA ÓLAFUR ÓLAFSSON
PRÓFASTUR FRÁ HJARÐARHOLTI.
Hinn 13. marz andaðist séra Ólafur Ólafsson fyrv.
prófastur í Dalaprófastsdæmi, einn af merldsprestum
landsins.
Hann var fæddur í Hafnarfirði 23. ág. 1860, sonur
Ólafs kaupmanns Jónssonar og konu hans, Kristinar
Ólafsdóttur. Hann útskrifaðist úr latínuskólanum árið
1883 og af prestaskólanum 1885 og vígðist sama ár, 6.
sept., prestur að Lundi í Borgarfirði. En 1902 var hon-
um veitt Hjarðarliolt í Dölum og varð siðan prófastur
í Dalaprófastsdæmi þa’ngað til 1919, er hann fékk
lausn frá emhætti og flutti til Reykjavíkur, og hefir
verið þar síðan. Ekki hefir hann tekið þar að sér sér-
stök störf. En hann var listhneigður og lagði nokkuð
fyrir sig að teikna og mála eftir að hann fékk tóm-
stundir til, og fór það smekklega úr hendi. Ritað mun
hann hafa nokkuð, og sjálfur sagði hann.mér, að hann
hefði ritað endurminningar sínar, og munu þær vera til
í handriti, og líklegt frá liendi slíks athafna- og áhuga-
manns, að þær væru læsilegar og fróðlegar, ef út kæmu
á prent. Einnig hefir maður nákunnugur honuni og
lærisveinn lians sagt, að hann hafi verið ágætlega hag-
orður og láti eftir sig allmikið safn skrifaðra ljóða.
En dult mun hann hafa farið með, því að ekki var mér
það kunnugt, þótt við værum sambekkingar. I skóla
var hann góður námsmaður og skyldurækinn og jafnan
ofarlega í bekk, en við vorum 20 saman, nú eftir 5 á
Íífi, Síðasta skólaár okkar veiktist hann og útskrifaðist
því ári síðar en við hinir.