Kirkjuritið - 01.12.1939, Blaðsíða 7
Kirkjuritið.
Himnaboðskap heyrðunú.
Himna boðskap heyröu nú
haldinn myrkri jarðar lýður,
móti honum tak í trú,
trú er elskan, sem hann býður
Ljóssins herra, lífsins hnoss,
lausnarinn er fæddur oss.
Jólastjörnu skinið skært
skín með ljóma í kristnum álfum,
vekur þig, svo verði kært
að veita lotning Kristi sjálfum.
Lífsins herra, sannleiks sól
syngdu lofsöng, haltu jól.
Kristur, fylling kærleikans,
komst til vor frá dýrðar sölum,
klæddur flíkum fátæks manns
fórst um kring í jarðardölum,
komst til þess að bæta höl,
bera syndir, líða kvöl.
Guðdóms fagri geisli þinn
gef að sálum þjóða lýsi,
þá mun haldast þrótturinn,
þó að bárur krappar rísi.
Þegar jarðlífs þrýtur sól,
þú munt gefa eilif jól.
Halldór Benediktsson.