Kirkjuritið - 01.12.1939, Blaðsíða 33
Kirkjuritié.
Kirkja Pínníands.
375
En minnistæðara en þetta alt er mér þó kvöldstund, er
ég átti í einum af stærstu söfnuðum Helsingfors i finn-
finskum söfnuði. Ég flutti þar stutt erindi, er túlkað var
á finsku, og sýndi myndir frá Islandi. Að öðru levti var
þetta kristilegt safnaðarkvöld. Þarna var samankomið um
1000 manns, mest ungt fólk. Það voru sungnir sálmar,
flutt stutt ávörp og bænir. Mér miklaðist mest,live þátttakan
var almenn og einlæg við bænaathöfnina. Þarna var kirkj-
an, sem bvgð var lifandi steinum. Ég fann, að söfnuður,
sem á slíkan flokk ungs fólks, er þarna var samankominn,
á góða framtíð fyrir höndum. Ég sé sýnina enn: Biðjandi
æska, Guði helguð æska, æska Pinnlands. Von og framtíð
finsku þjóðarinnar. Finnlandi ómetanlegur auður. —
Mér útlendingi ógleymanleg sjón.
Sigurjón Guðjónsson
frá Vatnsdal.