Kirkjuritið - 01.12.1939, Blaðsíða 39
Kirkjuritið.
Sýn keisarans.
381
„Á tindi Capitolium skal tilbiðja þann, er endurnýjar heiminn,
Krist eða Andkristinn, en ekki hrörlega, skapaða veru!“
Þegar hún hafði sagt þetta, hélt hún burt mitt á meðal mann-
anna óttaslegnu, gekk hægt niður fjallið og hvarf.
En Ágústus bannaði það stranglega næsta dag, að sér yrði reist
nokkurt musteri á tindi Capitolium.
I staðinn reisti hann þar altari guðabarninu nýfædda og nefndi
það Altari Himinsins, Ara Coeli.
„In His Steps“
Um þessar mundir er að koma út á Englandi rit með ofan-
skráðu heiti. Kemur það út vikulega í allstórum heftum (36 hls.).
Ur þar nákvæm lýsing á landinu helga og öllum viðburðum
i lifi og starfi Jesú Krists, samkvæmt frásögnum guðspjall-
anna, sennilega eitt hið allra ágætasta verk, sem gefið hefir verið
nt á þessu sviði. Ritið er prýtt fjölda afbragðs mynda frá
Gyðingalandi og jafnframt af atburðum úr lifi Krists. Ritið
kemur út vikulega og hóf göngu sína í marzmánuði. Hafa mér
borist i hendur 20 hefti. Eru þau ágætlega skrifuð, og mikla
ffæðslu þar að fá um landsháttu, en þó sérstaklega um þjóðina
á dögum Krists, stjórnarfar, trúarlíf og alt, er lýtur að lífi og
starfi Krists. Margir af ágætustu mönnum ensku kirkjunnar
feggja skerf sinn til ritsins. í fyrsta lieftið ritar þannig dr. Inge
dómprófastur ritgjörð, er hann nefnir: „The fire that was lit in
Galilee". — Væri vafalaust gott fyrir presta landsins að eignast rit
l'etta, og sjálfsagt langar marga til að kynnast höfuðriti um þetta
efni. Væri til valið fyrir 3—5 presta að slá sér saman um eintak.
Utgefandi er: The Amalgamated Press, Fleetway House, Faringdon
Ktreet, London, — en útsölu hér á landi hefir Snæbjörn Jóns-
son, bóksali, Reykjavik, og mun hann fús að gefa allar upplýs-
mgar, er menn kynnu að óska eftir viðvikjandi ritverki þessu.
Sigurgeir Sigiirösson.