Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1939, Page 14

Kirkjuritið - 01.12.1939, Page 14
356 Erlendur Þórðarson: Nóv.-Des. legasta og jafnframt blessunarríkasta afrek, sem nokkuru sinni hefir verið unnið á jörðu, er unnið af honum, er Iiann megnar að gefa mannlegum hjörtum trú á algóðan, almáttugan Guð — Guð föður, er leiði oss með óum- breytanlegri elsku og forsjón að dýrðlegu marki, liversu sem oss virðist dimt og einmanalegt á líðandi stund! Eg veit ekki til þess, að hægt sé að henda á nokkuð þvílíkt hjart ljós fyrir líf vort og líðan eins og þetta. Þetta er jólaljós mannssálarinnar, er enzt getur alla æfi. — Eins og barnið þráir liinn ljúfa blæ kærleikans frá um- Iiverfi sinu, eins þráir og þarfnast hjarta hvers fullorðins manns ekkert meir alla daga en að eiga vitund um elsku- ríka hönd Guðs við lilið sér. Hvílíkt undur undranna að geta opnað vitund mann- anna fyrir því, að þessu sé svona varið. Hvílíkt kraftaverk kraftaverkanna að geta hrundið lil hliðar þungum björgum efa, tortryggni, svartsýni og harðneskju og gefið mönnunum hjarta trú á Guð kær- leikans, trú sem á frelsandi mátt til að lyfta mönnum yfir marga örðuga Iijalla á lífsleiðinni! Hvað er eðlilegra en að ýms undur og stórmerki hafi gerst við fæðingu og hérvistarlíf þess, sem slíku krafta- verki reyndist og reynist vaxinn? En eins og vér kveikjum ljósin og slökkvum þau aftur, eftir að þau hafa logað nokkura stund, — eins fæðist lífið varir nokkura stund, og slokknar. Bernska — mann- dómsár og — elli. Ilið eina, sem nokkur á vísl uni framtíð sína, er, að hið sýnilega lif lians lmigur innan stundar lil moldar. Koma dauðans er yfirleitt andstæð eðlisþrá manna, hæði vegna þjáninganna, sem oftast eru undanfari hans, og vegna þess, að ljós eða óljós lnighoð eru flestum mönnum gefin um það, að eftir dauðann lialdi vitundarlífið áfram í enn hærri mynd og' við einhver kjör, og hugsunin um drýgðar syndir getur lagst þungt að. Það er ekki sizt á

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.