Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 20

Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 20
362 Sigurjón Guðjónsson: Nóv.-Des. Siðbótartímabilið er merkilegt í kirkjusögu Finnlands, og elur mesta afburðamanninn, sem finska kirkjan liefir átt:— Micbael Agricola. Siðbótin berst ótrúlega fljótt til Finnlands, frá Þýzka- landi. Árið 1523 — aðeins 6 árum eftir að Lúter festi upp sínar frægu greinar i Wittenberg — gerðist prestur einn í Ábo svo djarfur að prédika í anda bennar. Hann bafði verið i Þýzkalandi og hlýtt á siðbótarmennina. En sá prestur dó ungur, og þá kemur Agricola til sögunnar. Hann var prestssonur og var ungur settur til menta. Hann „stúderaði“ þrjú ár í Wittenberg bjá Lúter og Mel- anlcton og kom lieim aftur 1539 með meðmælabréf frá lærifeðrum sínum. Agricola befir stundum verið kallaður Lúter Finnlands sakir afburða liæfileika sinna og brenn- andi ábuga á siðbótinni og kristnilífi þjóðar sinnar. Um margt mættum við líkja honum við Gissur biskup Einars- son, þó að Agricola yrði happadrýgri. Staða lians gerði honum auðvelt til áhrifa, þar sem hann varð rektor við prestaslcólann í Ál>o. Fyrir frábærar gáfur og viljaþrótt náði hann ungur að aldri hæstu metorðum og varð biskup 1554, en dó eftir aðeins þriggja ára biskupsdóm. Þrátt fyrir stuttan vinnudag bafði hann eflt kirkju og kristni landsins meira en nokkur fyrirrennari hans á biskups- stóli. Hann var á sífeldu ferðalagi um landið kristindómn- um til eflingar, enda verður varla sagt, að hann festi djúpar rætur hjá finsku þjóðinni fyr en með Agricola. Ómetanlegt er starf hans finsku þjóðinni með því að hann ]>ýðir Nýja testamentið og nokkurn hluta Gamla testa- mentisins á finsku. Hann skrifaði finskt stafrófskver — Finn-Finnar voru undantekningarlaust ólæsir á þessum tímum — og liefir verið fyrir það kallaður faðir finskra bókmenta. Agricola gaf kirkjunni lielgisiðabækur á finsku. Skrifaði auk þess fjölda bóka. Auk þess var liann afburða prédikari. Starfi lians fyrir finsku kirkjuna má líkja við starf það, sem þeir Gissur Einarsson og Guðhrandur Þor- láksson intu af hendi samanlagt fyrir íslenzku kirkj-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.