Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 37

Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 37
Kirkjuritið. Sýn keisaraiis. Keisarinn skelfdist. Hann varpaði sér á kné fyrir framan altarið auða og gjörði bæn sína til verndaranda síns. Hann bað hann um þrótt til þess að koma í veg fyrir öll slysin, sem þessi nótt virtist boða. Völvan hafði heldur ekki orðið þessa vör. Hún hlustaði aðeins á englasönginn, sem varð hljómmeiri og hljómmein. Að lokum varð hann svo voldugur, að hirðarnir vöknuðu við hann. Þeir risu upp við olnboga og sáu ljómandi skara silfurhvítra engla s\íta fram uppi í myrkrinu i löngum fylkingum til og frá eins og far- fugla. Sumir héldu á lútu og fiðlu, aðrir á sítar eða hörpu, og söngur þeirra var fjörugur eins og barnshlátur, og áhyggjulaus eins og lævirkjakvak. Þegar hirðarnir sáu þetta og heyrðu, risu beir á fætur og héldu af stað til fjallaþorpsins, þar sem þeir áttu heima, til þess að segja frá þessu undri. Hirðarnir héldu hægt upp krókagötu, og Völvan forna fylgdist með þeim. Alt í einu birti uppi á fjallinu. Stór og skær stjarna birtist beint uppi yfir því, og bærinn á tindinum ljómaði eins og silfur í stjörnuljósinu. Allir fljúgandi englaskararnir flýttu sér þangað með fagnaðarópum, og hirðarnir hvöttu sporið og hlupu við fót. Þegar þeir komu þangað upp, sáu þeir, að englarnir höfðu þyrpst saman yfir lágu gripahúsi í nánd við bæjarhliðið. Það var fátæklegt hreysi uppi við beran hamrastallinn, og þakið úr strái. Stjarnan blikaði yfir því, og fleiri og fleiri englar söfn-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.