Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 48

Kirkjuritið - 01.12.1939, Side 48
Nóv.-Ðes. Söngur til móðurinnar. (Með hliðsjón af norskum texta). Móðir! Hversu helRur hljómur hreyfist inst í sálu mér. Drýpur niður dögg í hjartað, dregið ský frá sólu er. Þá ég heyri nefnt það nafnið — nafn það grœðir hulin sár — líða fram í ljúfum myndum löngu horfin bernskuár. Kæra móðir, milda móðir, man ég kærleiksfaðminn þinn, þínir söngvar, þínar bænir þrýsta mér í himininn. Þú mig vafðir ástarörmum innilega í vöku og blund, kystir tárin burt, og baðst mig, blítt að lcita á Jesú fund. Vefjast milt um vökudrauma, verður hugnæm hverful stund, minningarnar bjartar berast blítt og rótt úr helgum lund. Yndisfagra móðurminning minni sálu lífið bar. Kærleikurinn helgi og hreini, hann í öllu mestur var. Astar þakkir, elsku móðir, eru á himnum launin þín, þakka alt, sem þú mér veittir, þakka tárin vegna mín. Morgunstjarnan milda, djúpa, móðurástin, heilög lind, Hugrún. f,,,,tUMin»»»'"*'

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.