Kirkjuritið - 01.12.1939, Page 64
406
íslenzkar bækur.
Nóv.-Des.
og sorglegar, og eru sem neyðaróp um ljós og líkn í myrkri og
kærleiksleysi heiðindómsins.
í bók sinni lalar höf. ennfremur um nauðsyn kristniboðsins
og skyldur kristinna manna að rækja það og styðja, og svarar
mótbárum, um „hina óþörfu eyðslu“, sem svo oft er talað um í
sambandi við það. Loks lýsir höf. tildrögunum að því, að hann
sjálfur gerðist kristniboði og hvaða áhrifum og stuðningi hann
átti það að þakka, að svo réðst um liagi hans.
Bókin er hvorttveggja í senn fróðleg og áhrifarík, en þunga-
miðja hennar er hinn sígildi vitnisburður um lijálpræði mann-
anna í Jesú Kristi Mun aldrei fyr hafa komið út á íslenzku svo
ítarleg og lifandi lýsing á kristniboðsstarfinu og í þessari bók
Ólafs kristniboða, og ég efast ekki urn, að hún muni vekja marga
til umhugsunar um kristniboðsmálið, sem lítið hafa sint því, og
leiðrétta margar rangar hugmyndir, er menn liafa gert sér
uin það.
Sá, sem þetta ritar, las bókina sér til ánægju og uppbyggingar
og er höfundinum mjög þakklátur fyrir hana.
Óskar J. Þorláksson.
Charles Dickens: Lífsferill lausnarans. Bókaforlag Jóns Helga-
sonar. Reykjavík 1938.
l>að hygg ég rétt vera, að marga unnendur eigi skáldið Charles
Dickens meðal þjóðar vorrar. Man ég svo langt, að meira en lítið
kapp var á það lagt, að ná sem allra fyrst í h'ina heimsfrægu skáld-
sögu hans: Oliver Twist, er hún kom í íslenzkri þýðingu í bóka-
safnið, þar sem ég aflienti bækur þá. Eftir öðrum þýddum sög-
um var eigi meira spurt. — Þessari „nýju“ bók Charles Dickens,
sem ég vil hér með vekja athygli á, var líka mjög vel tekið
erlendis, er lnin kom út í fyrsta sinn árið 1934, og munu vinsældb'
hennar fara sívaxandi. Hefir hún þegar verið þýdd á ýmsar tung-
ur og þar á meðal á íslenzku. Virðist íslenzka þýðingin góð og
mjög i anda liöfundarins. Hún er gefin út á góðan pappír. Letrið
er greinilegt, stórt og fallegt. 10—20 myndir eru í bókinni, flestar
lieilsíðumyndir, og yfirleitl er allur frágangur bókarinnar prýði-
legur. Ég leyfi mér að mæla hið bezta með bók þessari sem góðn
og fallegri gjafabók handa börnum og unglingum. Foreldrar ætti'
alment að kaupa hana og lesa liana fyrir ungum börnum sínum.
þegar kyrrar stundir gefast. Ég skil ekki í, að nokkurn þurfi að
iðra þess. Frásögnin er svo ljós og lipur. Hún á að geta hrifið
ungan hug, þó að ónákvæmni kenni á stöku stað. Mér finst, að
segja megi um bókina, aff í henni séu lifandi myndir úr hinni
heilögu æfisögu frelsarans. Vald. V. Snœvarr.