Kirkjuritið - 01.01.1943, Blaðsíða 45
Kirkjuritið.
Litið um öxl.
Ctvarpserindi 12. júlí 1942.
Ctvarpsráðið hefir sýnt mér þann sóma og þá góðvild
að bjóða mér á þessum tímamótum æfi minnar að tala
við ykkur stundarkorn um liðinn tíma. Formaður út-
varpsráðs stakk upp á því, að við nefndum þetta erindi:
vLitið um öxl“, og það líkar mér vel, því að sú yfirskrift
má vel tákna það, að hér talar ekki maður, sem hefir
látið af störfum og er seztur í helgan stein, heldur mað-
Ur, sem er enn á ferðinni og starfandi og hefir engu síð-
Ur en nokkru sinni fvr á æfinni ánægju af starfi sínu
°g löngun til að vinna eitthvað til gagns. Ég lít um öxl
— en hefi jafnframt hugann á brautinni fram undan,
°g held áfram meðan Guð leyfir.
Það er í sambandi við 70 ára afmæli mitt, sem út-
varpsráðið bauð mér að tala í kvöld. Og þegar ég lít um
öxl, sé ég auðvitað fyrst það, sem næst er: Afmælisdag-
mn, sem var svo dásamlega bjartur og fagur, bæði af
veðurblíðu og sólarbirtu og ekki síður af þeirri miklu
ástúð, sem var þann dag látin mér í té í svo ríkum
mæli, að ég ofhermi ekki að ég hefi ekki annan afmælis-
dag glaðari lifað. Það kom svo margt fyrir þann dag,
sem vakti mér fögnuð í huga og dýrmætar minningar.
Fvrsta ganga mín um morguninn var út í gamla
kirkjugarðinn. Þar nam ég staðar við leiði foreldra
minna og' minntist bernskuáranna og þakkaði Guði fyrir
mína elskulegu foreldra og bernskuheimilið góða.