Kirkjuritið - 01.01.1943, Síða 56
Jan.-Febr.
Eftir prest.
(Ort 1928).
Hjá þér var bjart um stað og stund,
því störf þín voru Guði vígð,
og honum ævidáðin drýgð
af djarfri trú og hreinni lund.
Um byggðir landsins barst þitt mál
og bót á margra harmi réð —.
Þér gafst sú náð að geta séð
hið góða í hverri mennskri sál.
Af sögu þinni sæmdin skín.
Þig signir heilög kveðjuglóð
í þakkarhug og ástaróð
frá öllum þeim, sem nutu þín.
Þig tregar þjóð, á tjónið minnt,
sinn trúa son og fræðimann,
af allri sál hún harmar hann,
sem hefir sannlcikseldinn kynnt.
Það hafa allir mikið misst,
en mest þó kannske smælinginn.
Við munum bróðurmáttinn þinn,
sem minnti á lífs þins takmark: Krist.
I nafni hans og nálægð hér
þú náðir þinni mestu hæð:
Að seiða úr duftsins döpru smæð
þann dýrðartón, sem honum ber.
Allt vex, sem þinni leiðsögn laut,
því landnám þitt er gróðursælt.
Og áhrif þín fær enginn mælt
á allt, sem bjó við mein og þraut.
Þitt kennivald og kærleiksmál
var Kristi vígt í lífsins glóð;
því man þitt starf vort mál og þjóð,
á meðan biður íslenzk sál.
Gísli H. Erlendsson.
J