Kirkjuritið - 01.07.1954, Síða 18
304
KIRKJURITIÐ
Nú er þér í dag falið umsjónarstarfið í kristinni kirkju.
Ég beini til þín hinu heilaga orði: Styrkzt þú í náðinni,
sem fæst fyrir Jesúm Krist. Um leið og þú styrkist í
þeirri náð, fær þú hjálp í vandasömu starfi. Þá ná orðin
beint til þin: Gæt þeirrar Guðs hjarðar, sem hér er.
Ég hugsa oft, og þá einnig í dag, um þessi orð: Hafið
gát á sjálfum yður og allri hjörðinni, þar sem heilagur
andi setti yður biskupa, til þess að gæta safnaðar Guðs,
sem hann hefir aflað sér með sínu eigin blóði. (Post.
20. 28.)
Ég beini þessum orðum til þín á þessum vígsludegi. Ták
á móti fyrirheitum Drottins og haf svo gát á aUri hjörð-
inni. Tak á móti því heilaga starfi að vera sendur til allra
prestanna, til allra safnaðanna, til allra, sem eru játendur
Jesú Krists. Þú skalt líta eftir þeim öllum. Þú skalt gleðj-
ast, hvar sem þú heyrir lofsöng trúarinnar, þú skalt
hryggjast, er menn vilja ekki sinna orði Guðs og hans
háleitu kröfum.
Það er ekki mitt starf að áminna þig á vígsludegi þín-
um. En það er sú gjöf, sem oss er gefin, að Guðs orð
áminnir oss. Þess vegna bendi ég þér á þau orð, sem
styrkja þig í starfinu.
Orð vor mannanna hverfa fljótt. En orð Guðs c-r lifandi
og kröftugt.
Það er lífsnauðsyn að byggja á því orði.
*
Ég hefi þekkt þig um mörg ár og verið vottur að starfi
þínu. Ég hefi svo oft séð þig opna hina heilögu bók, og
má því í dag minnast þess, er postulinn segir við vin
sinn: Frá blautu barnsbeini þekkir þú heilagar ritningar,
sem geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist
Jesú. (2. Tím. 3. 15.) Þess vegna bendi ég þér ekki í dag
inn á ókunnar brautir, ég bendi þér inn á haglendi hins
lifanda orðs, og bið þess, að þú, elskulegi bróðir, ávallt
megir styrkjast af orði Guðs, og ávallt í biskupsstarfi
þínu segja: Tala þú, Drottinn, þjónn þinn heyrir.