Kirkjuritið - 01.07.1954, Page 50
336
KIRKJURITIÐ
af framúrskarandi alúð og skyldurækt. Hvar sem hann fór
duldist það ekki, að hann var sannur prestur. Einurð hans og
sannleiksást hlaut að ylja mönnum um hjartarætur, og kjarn-
inn í öllum boðskap hans var sá, að kristindómurinn væri
trúarbrögð kærleikans og allt, sem risi gegn því, ætti að falla
og hlyti að falla. í stjómmálasögunni ber einnig nafn hans
hátt, því að hann barðist í fylkingarbrjósti fyrir landsréttind-
um vor íslendinga.
Séra Halldór Jónsson, fyrrum prestur á Reynivöllum, and-
aðist 10. desember, áttræður að aldri, fæddur 5. desember 1873.
Honum auðnaðist það, sem fáum er veitt, að verða júbíl-
prestur. Hann gerðist aðstoðarprestur séra Þorkels Bjarnason-
ar á Reynivöllum 15. október 1899 og fékk veitingu fyrir presta-
kallinu vorið eftir. Síðan þjónaði hann Reynivöllum til fardaga
1950, sótti aldrei þaðan og mun jafnvel aldrei hafa komið slíkt
til hugar. Hann var forystumaður í menningarmálum og fram-
faramálum héraðs síns, hreppsnefndaroddviti og sýslunefndar-
maður áratugum saman og bjó sjálfur blómabúi.
Hann kvæntist Kristínu Hermannsdóttur Johnsens, sýslu-
manns á Velli, 1903. Hún andaðist 1941.
Séra Halldór var hugsjónamaður, brennandi í anda. Einkum
unni hann mjög söng og sönglist, fékkst við tónsmíðar og lék
á hljóðfæri. Mun liggja eftir hann fjöldi laga. Hugsjónamálum
sínum kom hann í framkvæmd hverju af öðru og lét sér ekkert
mannlegt óviðkomandi. Allt starf hans var með einhverjum
hætti í þjónustu Guðs ríkis, og hann var sannur sálnahirðir
safnaða sinna. Prestsstarf hans var til fyrirmyndar. Mér skilst,
að hann hafi unnið það svo, að hann hafi verið í fremstu röð
presta á íslandi frá upphafi og allt til vorra daga.
Séra Öli Ketilsson, fyrrum prestur í Hvítanesi í Ögurþingum,
andaðist á ísafirði 25. marz, 57 ára að aldri, fæddur 26. sept.
1896.
Hann var prestur í Ögurþingum í 22 ár, 1925—1947, sat fyrst
í Súðavík, en síðast í Hvítanesi, þar sem hann bjó góðu búi.
Hann fékk lausn frá prestsskap sökum vanheilsu 1947. Eftir
það dvaldist hann á ísafirði og vann skrifstofustörf. Hann
kvæntist Maríu Tómasdóttur frá ísafirði 1917, og eignuðust
þau 5 börn.
Séra Óli var vel gefinn maður og þótti vera ágætur prestur,