Kirkjuritið - 01.12.1954, Qupperneq 20

Kirkjuritið - 01.12.1954, Qupperneq 20
442 KIRKJURITIÐ deilda kristinnar kirkju. Hafa sprottið upp af þessu ýmsar al- þj óðahreyfingar, svo sem KFUM og K, Heimssamband kristinna stúdenta og Alþjóðakristniboðsráðið. En aðalstarfið að þessari samvinnu kirknanna fór fram í tveim meginstefnum, er gengu undir nöfnunum Life and Work, Líf og starf, og Faith and Order, Trú og skipulag. Hélt fyrr- nefnda hreyfingin geysifjölmennt þing í Stokkhólmi 1925, en hin í Lausanne í Sviss 1927. Þótti leiðtogum þessara voldugu samtaka sem finna mætti sameiginlegan starfsgrundvöll, og voru haldnir um það margir fundir. Var svo langt komið, að haldinn var fundur með leiðtogum í Utrecht í Hollandi til undirbúnings þess, að stofnað yrði alþjóðakirkjuráð, World Council of Churches. Hér var ekki um það að ræða, að stofna til samstarfs einstakra manna eða safnaða, og ekki heldur að mynda neina „yfirkirkju“, heldur samband kirkjudeilda, er starfa vildu saman á þeim grundvelli, að þær játuðu ,,trú á Drottin Jesú Krist sem Guð sinn og Frelsara". Síðari heimsstyrjöldin olli því, að ekki varð úr fyrsta fundi þessa alþjóðakirkjuráðs fyrr en í Amsterdam 1948. Komu þar saman fulltrúar frá 150 kirkjum og stofnuðu ráðið formlega 23. ágúst það ár. Vakti þing þetta hina mestu athygli víða um lönd, enda stóðu að því flestar meiri háttar deildir kristinnar kirkju aðrar en rómversk katólska kirkjan og rússneska ortódoxa kirkjan. Og beztu menn og atkvæðamestu gengu fram fyrir skjöldu. Orðaði Visser t’Hooft, aðalritari ráðsins, vígorð móts þessa: „Við ætl- um að standa saman." Skipulag og stnrfstilhögnn. Hér er um svo óskaplegt bákn að ræða, að óhugsandi er að lýsa því í fáum orðum, nema stærstu megindráttum. Æðsta valdið er í höndum sjálfs Alþjóðakirkjuráðsins, en það er um 600 fulltrúar aðildarkirknanna undir forustu sex manna stjórnar. Voru í henni: Athenagoras, erkibiskup af Þýatíru, Fisher, erkibiskup af Kantaraborg, Marc Boegner frá Frakk- landi, Eivind Berggrav biskup frá Noregi, ungfrú Sarah Chakko frá Indlandi og Bromley Oxnam biskup frá Bandaríkjunum. Allsherjarþing ráðsins kýs 100 manna miðstjórn, er fer með stjórn mála milli þinga, og kemur saman árlega. Formaður hennar var K. G. A. Bell, biskup af Chichester í Englandi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.