Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 23
EVANSTONÞINGIÐ
445
Fundur í Memorial Hatt. Fulltrúar Islands eru í liorninu efst til vinstri.
verkum Drottins“ í sköpun heims og sögu mannanna, endur-
lausn Jesú Krists og endanlegum sigri Guðs ríkis. Fór þetta
fram eftir að dimmt var orðið, svo að hin ótrúlegu litbrigði
kastljósanna nutu sín, en jafnframt var lesið úr Ritningunni,
sungið og talað.
Þenna sama dag var fyrsti fundur haldinn í Memorial Hall
og framsöguræður fluttar um meginefni þingsins: Kristur, von
heimsins. Kom brátt í ljós, og löngu fyrir þingið, að menn
lögðu tvenns konar merkingu í þetta orð eða túlkuðu það á
tvennan hátt. Voru tveir framsögumenn. Dr. Schlink frá Heidel-
berg túlkaði þá merkingu, sem mest kom fram hjá guðfræðing-
um Evrópu: Vonin í Jesú Kristi er bundin við endurkomu hans