Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 29

Kirkjuritið - 01.12.1954, Page 29
SÍRA JÓN ÞORLÁKSSON Á BÆGISÁ 451 nokkuð rætt í þessu synoduserindi, manninn, skáldið og prestinn. Kirkjan má gjarna minnast hans. Hann var hennar sonur ekki síður en þjóðarinnar, trúarskáld ekki síður en þjóðskáld. En að því, er eg bezt veit, hefir minning séra Jóns aldrei verið heiðruð af kirkjunni sérstaklega, nema ef telja má hátíðarhöld, er fram fóru að Bægisá haustið 1919 á aldar- ártíð hans, er minnisvarðinn var honum reistur, og svo það, er safnaðarfólk í Bægisárprestakalli forna minntist þar lítillega á staðnum tveggja alda afmælis skáldsins fyrir 10 árum. Það var í byrjun jólaföstu árið 1788, sem séra Jón Þorláksson kom fyrst að Bægisá, og fór embættisinnsetn- ing hans fram rétt fyrir hátíðirnar, eða 3ja aðventu- sunnudag, og var það afmælisdagur hans. Prestslaust hafði þá verið á staðnum síðan um mitt sumar, en þá drukknaði séra Árni Tómasson, er þar hafði þjónað áður, í Akureyrarhöfn, maður á bezta aldri. Sat ekkja hans, Helga Jónsdóttir, eftir í brauðinu, og gerðist séra Jón heimamaður hennar fyrst um sinn. Má ætla, að heldur hafi verið dauflegt á Bægisá við komu nýja prestsins, í svartasta skammdeginu, og honum ekki girndarráð að setjast þar um kyrrt. Var og innreið hans sjálfs ekki með neinum glæsibrag og ekki lík því, að þar væri á ferð Þjóðkunnur maður, sem hann þó raunar var orðinn þá þegar fyrir all-löngu. Fór hann einn saman og hafði komið gangandi alla leið vestan úr byggðum Breiðafjarðar, en að vísu tekið góða hvíld á Hólum, hjá fomvini sínum Þar, Halldóri Hjálmarssyni, konrektor, og um það leyti settum skólameistara. Segir sagan, að séra Jón væri þá htt búinn að klæðum og öðrum fararefnum, og er heldur ótrúlegt. En þungt hefir honum þótt undir fæti á Hjalta- dalsheiði, á norðurleið, ef marka má stöku hans, alkunna.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.