Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Side 15

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Side 15
PRESTSKOSNINGIN f EHRENWOLMSÞORPí 109 hvernig nýi presturinn liti út, hvernig hann hegðaði sér, talaði og syngi, hvort hann væri kvæntur eða ekki -— í stuttu máli; af hvaða sauðahúsi sá maður væri, sem söfnuðurinn ætti að greiða 800 dah á ári og auk þess ætti að fá afraksturinn af prestsakrinum. íbúarnir í Ehrenwolmsþorpi voru hreyknir af kirkjunni sinni, sem þeir höföu nýlega látið gera við fyrir ærna peninga. Og þá þótti þeim ekki minna koma til hinnar fjörugu kirkjusóknar, sem frá alda öðli hafði einkennt þorp þeirra. En í manna minnum hafði kirkj- an þó ekki verið svo þéttskipuð og við reynsluprédikanirnar, sem haldnar höfðu verið þrjá sunnudaga í röð í júlímánuði. Þá vildi enginn láta sig vanta. Allir vildu leggja orð í belg um þetta velferðannál þorpsins, þó að aðeins nokkrir drottins útvaldir hefðu rétt til að kjósa. Á Ieiðinni heim úr kirkjunni var rætt af ákafa. Menn og konur sögðu sína skoðun um ræðuna, og hvernig þeim hafði litizt á ræðumann. Fyrsti ræðumaðurinn var grannur og kinnfiskasoginn, með dökk augu, sem lágu djúpt inni í höföinu. Hann var kom- inn af bezta skeiði — og farinn að fá skalla. Hann hafði þegar fengið embætti annarstaðar, en því var fleygt, að hann hefði komizt í ósátt við söfnuð sinn og því sótt burtu. Það var nú dálítill kraft- ur í ræðum hans! Hann hét á menn með sinni djúpu, alvarlegu rödd að bæta ráð sitt, sökkva sér niður í rannsóknir á sál sinni og áminnti menn umfram allt um að deyða holdið. Og veikum sálum hót- aði hann sjóðandi víti. Orð hans höfðu sýnilegan árangur. Þorpsbúar höfðu ekk- ert á móti því, að láta segja sér til synd- anna. Þegar ræðumaður geystist sem mest í stólnum og barði í röridina á hon- um, til að gefa kenningum sínum meira kraft — þá fór sælukenndur hrollur uin þá. 0g lítið þið nú á, það er ekki svo lit- ilsvert að kunna að lýsa eilífi'i útskúfun eins og þessi! »Presturinn kann það«, sögðu feðurnir í þorpinu hverir við aðra, þegar þeir hittust utan við kirkjuna. Þá tók hver á fætur öðrum upp tóbaksdós- irna'r og fékk sér í nefið, til að styrkja sig eftir þessa þægilegu æsingu. Þá hafði nú presturinn ekki síður haft áhrif á frúrnar. Þær höfðu fundið hinri leynda tilgang ræðunnar, því að frúrnar hafa sérstakt lag á að finna leyndan tilgang í öllum hlutum. Þær hugsuðu með sér, að það væri líka eins gott, að nýi prest- urinn gæti sagt mönnunum þeirra til synd^nna. Því að það mátti nú segja, að upp á síðkastið var farið að losna um siðferö- ið í Ehrenwolmsþorpi. Gamli presturinn sálugi hafði orðið vægari með aldrinum og mjög sjaldan prédikað gegn drykkjuskap, spila- mennsku, áflogum og öðrum þessa heims Iöstum. En þessi maður með hvössu aug- un, sem gátu gert menn hrædda á löngu færi, gat komið mönnum í skilning um syndir sínar. Þannig vildi það til, að þessi strangi iðrunarprédikari hafði kvenþjóðina sín megin. Ekki máttu þó frúrnar í Ehrenwolms- þorpi kjósa, þó að þær hefðu þar — eins og annarstaðar — Teyfi til að leggja orð í belg. Meðal kirkjufeðranna voru nokkr- ar kláðakindur. Þeim fannst þessi þrumu- ræða prestsins hafa hróflað ónotalega við samvizku sinni. í stuttu máli: Þeir höfðu eitt og annað út á hann að se'tja. Því var ákveðið að fresta kosningunni og hlýða á þann næsta, sem sótt hafði um stöðuna. Það var maður af allt öðru sauðahúsi: lítill, iðandi maður, snjóhvítur í framan. Hann hafði verið vígður fyrir skömmu og verið aðstoðarprestur í þorpi þar í grennd. Hann var fljótmæltur og notaði

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.