Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Blaðsíða 36

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Blaðsíða 36
130 NÝJAR KVÖLDVÖKUR hugsanir sínar. Hin einasta hreyfing hennar virtist hafa verið sú, að færa sig úr kápunni og leggja hana til hliðar. Hann gat ekki varizt því að veita því athygli hversu hálsinn var mjallhvítur og handleggirnir fagurskapaðir. Vínblönduna hafði hún ekki snert. »Fellur þér ekki vínið?« mælti lianu. Hún leit upp óttaslegin eins og sært dýr í gildru. Augun virtust spyrja hve- nær árásin yrði gerð, hvenær höggið ætti að falla. Hann var raunar myndarlegur maður, ef hann hefði verið svolítið folíð- ari og harkan ekki svona miskunnarlaus. Hann lyfti glasinu og rétti henni og mælti: »Þetta er ef til vill orðið volgt. Þjónn- inn getur hæglega blandað í glasið aft- ur?« »Þakka þér fyrir, ég þori ekki að drekka það«. »Þorirðu ekki?« »Ég hefi ekki borðað neitt í dag«. Ekki fanst honum nokkur efi á því að hún lygi þessu. »Maður skyldi ímynda sér, að með tvö hundruð pund í vasanum þyrfti enginn að svelta«. . »Gleymdi því«. »Gleymdir því?« Hann brosti mjög efablandinn. Auðvitað laug hún því. »Jæja«, sagði hann kæruleysislega, »þú ættir þá að hafa þeim mun betri lyst á kvöldverðinum. Ef þú ætlar ekki að drekka þetta« — Hann skvetti úr glasinu. »Þá förum við«. Hún reis svo þreytulega á fætur að hann fór allt í einu að efast. Setjum nú svo að hún segði satt, að hún hefði nú í raun og veru ekkert borðað í dag? Ef svo væri þá yrðu líklega fljótt ráðnar bætur á því. Þau gengu út úr íbúðinni hlið við hlið og inn í lyftuna og voru á svipstundu komin ofan í forsalinn. Þegar út á stræt- ið kom sá hún að skrautvagn beið þeirra. »Þjónninn minn símaði eftir honum á meðan ég klæddist«, mælti hann til skýr- ingar. »Þegar maður býður dömu að borða með sér!« Hann tók undir handlegg hennar, laus- lega að vísu, en hún fann, að hann var viðbúinn að herða á takinu, ef á þyrfti að halda og hjálpaði henni upp í. Hún settist hægra megin eins og hún væri al- vön því að keyra í svona vagni. öku- þórinn breiddi yfir þau loðfeld úr mjúku skinni og síðan þutu þau af stað. Hann skotraði til hennar augunum forvitnislega. »Það er einhvernveginn eins og þú kunnir ekkert illa við að ferðast á þenn- an hátt?« Hún brosti. »Nú eru mörg ár síðan að ég átti vagn líkan þessum«. »Þá hefir þú haldið illa á spilunum, eins vel vaxin kona. Hvar hefir þú geymt skynsemina?« »Ég býst við að þú hafir rétt fyrir þér«, mælti hún. »Ég hefi haldið mjög illa á spilunum. Það hefi ég ávallt gert. Ég hefi andstyggð á — að selja«. »Er það ekki það, sem konum er bezt lagið?« »Þær gera sér að minnsta kosti mjög fáar grein fyrir því«. Hún leit út um gluggann á umferðar- strauminn. í London var allt á ferð og flugi, allt uppljómað og prýtt. Yfir svip hennar hvíldi friður, djúp eftirvænting, alveg eins og henni stæði á sama um, þá að hann væri með henni, og hún hugsaði ekki vitund um hvað hann kynni að gera við hana. Það var undarlegt. ómögulegt var að sjá að hún væri hrædd, og þó var það tæplega hugsanlegt, að kona væri ekki hrædd í slíkum kringumstæðum. Meðan hún horfði út um vagngluggann

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.