Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Qupperneq 44

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Qupperneq 44
138 NÝ-JAR KVÖLDVÖKUR »í kvöld hefir þú orðiö að standa and- spænis hefnigjörnum manni. Þú hefir hlotið nóg af þjáningum. Ég vil ekki ger- ast annar hefndarböðullinn til. Ég vildi mega verja lífi mínu til þess að reyna að gera þig hamingjusama. Þú hlýtur að vera búin að fá nóg af gamla heiminum. En til er önnur heimsálfa og hana ætla ég að sýna þér. Við skulum fara burt héðan«. Séra Benjamin Kristjánsson þýddi. Förumaður. Eftir F. H. Berg. Það var skuggalegt haustkvöld með þoku og salla rigningu; ég hafði verið að ryðja land; fella tré og grafa upp ræt- ur og stofna, og var nýlega kominn heim í kofann minn. Ég var einbúi og varð því að sýsla um innanhúss störfin, en þau voru hvorki mörg né mikil. Það fyrsta sem ég gerði, var að kveikja upp eld, og innan lítillar stundar blossaði og brakaði eldurinn í þurrum skíðunum og sló þægilegum bjarma á gólf og veggi kofans. Ég kveikti í pípunni, hallaði mér aftur á bak í stólgarm, sem gjörður var af trjágreinum, og stóð fyrir framan eld- stæðið, og eftir því sem hlýnaði í kofan- um, færðist höfgi yfir mig, og að lokum sofnaði ég. Skyndilega hrökk ég upp við að drepið var á dyr. Mér flaug undir eins í hug, að sá sem kominn væri hlyti að vera ókunnugur og langt að kominn, því venja okkar land- nemanna var að ganga rakleitt inn hver hjá öðrum. »Kom inn«, kallaði ég og hreyfði mig ekki; rétt á eftir heyrði ég að hurðin var opnuð, en fótatak heyrði ég ekki. Ég leit því um öxl til dyranna; hurðin stóð í hálfa gátt, og í bilinu milli stafs og hurð- ar stóð maður, sem hélt annari hendinni um hurðarhandfangið, en hinni á dyra- stafnum. Hann starði inn í kofann, en mælti ekki orð. »Hver ertu og hvað viltu?« spurði ég og stóð á fætur, en maðurinn í dyrunum svaraði engu, hann hélt áfram að stara inn, og nú tók ég eftir því, að hann starði ekki á mig heldur á eldinn, sem logaði svo glatt að birtu bar um allan kofann. »Hver ertu og hvað viltu?« spurði ég á ný, og það var ekki laust við að ég fyndi til einhvers beygs í návist þessa gests, hann var svo einkennilegur í útliti. And- litið var magurt og fölt, skeggið svart og hrokkið, ef það hefði ekki verið fyrir aúgun, þá hefði manni getað dottið í hug svipur. Augun ein vitnuðu um líf hjá gestinum; þau voru dökk og djúp og full af einhverju seiðmagni, sem ekki verður með orðum lýst. Ég endurtók spurningu mína í þriðja sinn. Þá opnaði gesturinn munninn, benti á eldinn og kom loks upp því, er hann vildi segja: »VesælI maður ég! Mér mjög kalt! Mjög þreyttur, gengið marga dagal Ekkert að borða!« Hann tíndi orðin fram eins og hann þyrfti að leita að hverju fyrir sig og

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.