Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Page 10

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Page 10
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. lægt landi. Rað var blíðalogn og bátar höfðu skipin í togi og gekk seint. ^Eftir hálttíma er komið svartamyrkur, Pjetur,« sagði O’Brian, »og jeg held, að við gætum náð þeim, áður en þau leggjast við akkeri, og þó að svo yrði ekki, þá leggjast þau lar.gt fyrir utan hafnarmynnið. Hvað segirðu um þetta?« Jeg var honum samdóma um þetta, því að jeg var í því betra skapi sem við vorum* nær landi, en eftir þvf sem við fjarlægðumst sliönd ina, því þyngra varð mjer innanbrjósts, því að þá var jeg þéim mun lengra frá Celestu. Hún hvarf mjer nú aldrei úr huga, því að eftir að fundum okkar bar saman síðast eftir svo lang- an aðskilnað, fann jeg mjög glögt, að vinátta sú, er jeg hafði borið til hennar, hafði breyst í brennandi ást. Og jeg held, að jeg hefði aldrei verið sendur út í þá tvísýnu inn á höfn- ina, að jeg hefði ekki tekið því fegins hendi, þótt jeg þar fyrir væri engu nær því takmarki, er jeg þráði svo mjög. En svona var það. Og þegar maður er ekki nema tuttugu og tveggja ára, þá hefir maður yndi af að byggja sjer skýjaborgir og tekur lítið tillit til þeirra erfið- leika, er sigra þarf, til að komast að markinu. |eg fjelst þvf skjótt á uppástungu O’Brians og kvaðst þess albúinn að reyna þetta og huggaði hann þó með því, að ef jeg sæi brýna hæftu yfirvofandi, skyldi jeg snúa við. »Jeg veit, að mjer er óhætt að reiða mig á þig,« sagði O’Brian, »og það er þó alt af huggun, að hafa með sjer foringja, sem hægt er að trúa eins og sjálfum sjer. Jeg hef líka svo gott sem alið þig upp, karl minn, og kent þjer ýmislegt. Settu nú út stórbátinn og mann- aðu hann og hina bátana, og láttu það ganga fljótt. Rað hefir verið heitt í dag og mollu- legt og mistur í lofti. Líttu bara á sólina, sem er að ganga undir. Hún er blóðrauð og þrefalt stærri en vanafega. Jeg er hræddur um, að við fáum rok úr hafi,« Hálflíma síðar var jeg kominn af stað með bátana. Pað var feikna hiti og svo kyrt og og þögult, að engu var líkara en höfuðskepn- urnar lægu í dvala. Stjörnurnar sáust varla, þó að heiðskírt væri, fyrir einhverskonar þoku- mistri, sem þó eigi var greint frá myrkrinu, sem varð æ svartara, eftir því er á leið kvöld- ið, en ekki bærði hár á höfði. V.ð höfðum nú róið lengi og á ætlúðum, að við mundum vera komnir inn í hafnarmynnið, því að við sáum ekki faðmslengd út fyrir borðstokkinn. Swlnburne var með mjer eins og vant var og slýrði bátnum, og jeg fór að vekja athygli hans á því, hve óvanalegt veðurlag þetta væri. »Jeg er búinn að veita því eftirtekt fyrir löngu,« svaraði Swinburne, »og ef við bara vissum, hvert stefna skyldi til þess að finna aftur skipið, mundi jeg hiklaust ráðleggja yður að snúa við hið allra bráðasta, því að jeg er illa svikinn, ef »Skellinaðran« þarfnast ekki allrar sinnar áhafnar i nótt.« »Hvað eigið þjer við?« spurði jeg. »Jeg held semsje — eða réttara sagt, jeg er viss um, að það verður kominn á fellibylur áður en birtir. Pað er ekki í fyrsta skifti, sem jeg er á vakki á þessum slóðum.« »Jeg held þ;'er hafið á rjettu að standa. Að minsta kosti ætla jeg að snúa við, Pað getur vel verið, að við iinnum skipið, áður en hann skellur á. Siglingaljósin ættum við þó að geta sjeð.« Jeg Ijet bátana snúa við, og róa í þá átt, sem jeg hjelt, að skipið mundi vera. En við höfðum skamma stund róið, er að eyrum okk- ar barst kynlegur, drynjandi hvinur og var ekki unt að greina með neinni vissu, hvaðan hljóð þetta kom fyrst í stað. Stundum virtist það koma frá hægri og slundum frá vinstri, og það var eins og við værum að róa í gegnum biksvartan hamar úr myrkri, sem var svo kaf- þykt, að það var varla hægt að trúa því, að það væri ekki áþreifanlegt. Swinburne leit í kring um s’g og benti svo framundan stjórn- borðsmégin. »Nú er hann að skella á! Pað er ekki um að villast. Pað verður margur, sem ekki vakn- ar til þes;a lífs í fyrramálið. Sjáið þjer nú, herra!« Jeg leit fram undan, og þótt myrkrið væri

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.