Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Blaðsíða 21

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1927, Blaðsíða 21
NÝJAR KVÖLDVÖKUR. 15 um, en aðrir gripu strax árarnar. Við Iofuð- um þeim að komast að skipshliðinni og haka sig þar fasta áður en við sendum þeim hina skotdembuna. Fjellu enn margir, en þó voru nokkrir eftir, sem rjeðust til uppgöngu. Við undruðumst að hinn báturinn skildi ekki ráðast á okkur, en nú sá jeg, eða öllu heldur fann, að komin var dálítil gola, og skipið komið á töluvert skrið. Jeg losaði bátshakann svo að bát- urinn rann aftur með hliðinni, undan þeim, er hjengu utan í skipshliðinni, og var þess stutt að býða, uns þeir voru allir högnir niður af hásetum okkar. »Nú skulu þeir fá það, sem þeir eiga skilið,* hrópaði Swinbure og snaraðist að stýr- inu og rjett á eftir heyrðum við brak. Swin- burne hafði stýrt skonnortunni beint á bátinn, þann er ekki hafði náð til okkar, og skreið hún bókstaflega yfir hann, en margir af bát- verjum náðu sjer um leið í skipið og komust sumir alla leið upp á þiljur, en þar voru þeir fljótt bornir ofurliði. Hinir hjengu í skips- hliðinni þangað til þeir urðu að sleppa takinu og smá hurfu þeir svo í bylgjurnar. Áttundi kafli. Kollsigling og lífsháski. Við komumst heilu og höldnu í námd við Barbadoes og áttum ekki eftir nema 10 mílur að skipalaginu. Retta var að kvöldi dags, og jeg gekk til náða með þeirri vissu von, að jeg gæti lagt skonnortunni í lægi um dagmálabil að morgni. En í dögun vaknaði jeg við það, að jeg hentist út úr rúminu og yfir í hina hlið svefnklefans, og heyrði jeg vatnsskvamp mikið. Mjer datt strax í hug, að nú hefðu þeir koll- siglt skonnortunni og æddi upp á þilfar. Jeg sá, að ágiskun mín var rjett. Rað hafði komið rok kviða og kastað skipinu alveg á hliðina, og var fyrirsjáanlegt, að innan 10 mínútna hlyti það að vera sokkið. Allir voru á þiljum, sumir í öllum fötum, en aðrir eins og jeg, á tómum nærklæðunum. Swinburne stóð á afturþiljum og hafði öxi í hendi og hjó með henni öll tengsl af stór- seglsásnum; jeg sá hvað hann ætlaði fyrir og greip því aðra öxi og fór að höggva á þau tengsl, er festu seglið við ásinn næst siglunni, því að það var nú eina björgunarvonin, að fljóta i einhverju af reiðanum, því að báturinn hafði verið htjeborðsmegin og 'því á kafi í sjó. Þegar seglásinn var laus, tóku allir sjer stöðu við hann, því að nú var skipið að sökkva. Rað lyftist ofurlítið upp að aftan og seig svo niður í djúpið og sogaði með sjer bæði ásinn og okkur, en okkur skaut þó fljótt upp með farkosti okkar. Vindkviðan, eða öllu heldur skúrinn, því slíkum skyndibyljum fylgir þarna oftast nær hagl eðe regn, var nú hjá liðin, og komið stilli logn og heiður himinn. Við hjengum allir með tölu á seglásnum og var Swinburne næstur mjer. Hann bað mig að minnast þess, ef að jeg kæmist lífs af, að þetta slys hefði ekki verið sjer að kenna, því Collins hefði verið búinn að leysa sig af verði. »Jeg skyldi hafa verið undir þetta búinn,« sagði hann. »En,« — bætti hann við. »Við erum að vísu ekki Iangt frá landi, en þó er mjer grunsamt um, að líklegra sje að við rekumst á bein- hákarlana en vini, sem bjargi okkur.« Pað var alveg stafa-logn og hitinn varð al- veg óþolandi, þegar fram á daginn leið, því að ekki höfðum við svo mikið sem húfu eða hatt til að skýla höfðum okkar fyrir hinum brenn- andi geislum. Sólin var beint yfir höfðum okkar og mátti svo segja að hitinn bókstaflega steikti þann hluta skrokksins, sem var upp úr sjónum. Jeg segi fyrir mig, að jeg held jeg hefði boðið þann hákarl feginsamlega velkom- inn, sem hefði gert skjótan enda á hinum voðalegu þjáningum, hefði ekki hugsunin um Celeste haldið við í mjer lífsþróttinum og lífs- lönguninni, svo að jeg reyndi af fremsta megni að halda mjer við seglásinn. En þegar fór að liða fram yfir nónbilið, var jeg orðinn veikur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.